Skólinn

Fréttir

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 21.12.2011

u425Brautskráning fór fram 17. desember kl. 11 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Útskrifaðir voru 75 nemendur frá skólanum, þar af einn af tveim brautum.  

Skólameistari, Gísli Ragnarsson  setti athöfnina og félagar úr skólakórnum sungu nokkur lög.

Fjóla Björgvinsdóttir skrifstofustjóri lét nýlega af störfum og var henni þakkað fyrir gott starf.

Aðstoðarskólameistari, Ólafur H. Sigurjónson flutti skýrslu um skólastarfið. Hann fjallaði m.a. um verkefnið Nám er vinnandi vegur. Verkefnið felst í því að öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri og sem uppfylla skilyrði var tryggð skólavist nú í haust. Ætlunin er að minnka brottfall framhaldsskólanemenda úr 30% niður í 10% fyrir árið 2020. Áætluð útgjöld ríkissjóðs og Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna átaksins nema tæpum 7 milljörðum króna á árunum 2011-2014. Ólafur sagði að þetta verkefni væri fagnaðarefni og brýnt að það takist vel. 

Skólameistari og kennslustjórar afhentu síðan einkunnir og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi fékk Simona Vareikaité en hún fékk ágætiseinkunn í 29 námsáföngum. Simona fékk einnig viðurkenningu fyrir frábæra skólasókn. Loks fékk Simona viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar.  

Kristján Hafþórsson, fulltrúi stúdenta ávarpaði gesti áður en skólameistari sleit að lokum athöfninni.

Lesa meira
 

Prófsýning á fimmtudag - 13.12.2011

 

skoli_06Miðvikudagur 14. desember:              Próflok – sjúkrapróf.

Fimmtudagur 15. desember:              Nemendur fá aðgang að einkunnum í INNU.

Prófúrlausnir og önnur verkefni verða sýnd nemendum kl. 11.00 – 13.00

Föstudag 16. desember  kl. 16.00 er æfing fyrir brautskráningu í hátíðasal skólans (skyldumæting útskriftarnema).  

Brautskráning fer fram í hátíðasal skólans á laugardag kl. 11.00.

Lesa meira
 

Mannréttindasamstarf - 7.12.2011

 

hannes07Á þessu ári lauk mannréttindasamstarfi Fjölbrautaskólans við Ármúla við II Liceum Ogolnoksztalcace skólann í Grudziadz í Póllandi. Samstarfið gekk út á að kenna um mannréttindi og efla samkipti nemenda í löndunum tveimur. Tíu kennarar við Ármúlaskóla heimsóttu skólann í Póllandi og fóru þar á námskeið í kennslu mannréttinda, nemendur þaðan heimsóttu skólann okkar og nemendur héðan fóru í heimsókn til Grudziadz auk þess að kynna sér brot á mannréttindum með því að fara til Auswitch og fleiri staða í Póllandi.

Nú er þessu samstarfi að ljúka og skólinn okkar var að fá send tíu veggspjöld frá pólska skólanum en á þeim má sjá myndir frá samstarfinu auk dagatals þar sem minnt er á alþjóðlega mannréttindadaga. Á meðfylgjandi myndum sjást spenntir kennarar opna pakkann frá Póllandi en nánari upplýsingar um samstarfið eru á slóðinni http://becominghuman.fa.is

Lesa meira
 

Próf og prófareglur - 5.12.2011

 

lok_11_39Nú standa yfir próf í skólanum. Nemendur sjá á auglýsingatöflu í anddyri skólans í hvaða stofu þeir eiga að vera. Meðal þess sem þarf að muna að hafa með sér í próf eru persónuskilríki. Þau eiga að liggja á prófborði ásamt útfylltum viðverumiða í byrjun prófs. Slökkt skal vera á farsímum og þeir mega ekki vera á prófborði. Kennarar viðkomandi prófa koma tvisvar í prófstofu á meðan á prófi stendur og svara spurningum sem upp koma. Nemendur geta haft með sér hressingu en mælt er með því að vera ekki með ílát sem skrjáfar í. Nánari upplýsingar um prófareglur eru á http://www.fa.is/nam/profareglur/?CacheRefresh=1

Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica