Skólinn

Fréttir

Annarlok - 15.5.2012

sumarBráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Prófatíma er lokið og handan við kalt hornið bíður sumarið. Nemendur geta nálgast einkunnir í INNU 16. maí. Þeir sem þurfa að breyta námsvali sínu fyrir næstu önn eru hvattir til að koma í skólann sama dag kl. 11.-13 og ganga frá því með umsjónarkennara sínum. Annarlok við Fjölbrautaskólann við Ármúla verða eftirfarandi:

  • 16. mai kl. 11-13. Prófasýning og frágangur á vali fyrir haustönn
  • 16. maí kl. 9. Endurtektarpróf (fyrir stúdentsefni)
  • 18. maí kl. 16. Æfing fyrir brautskráningu í hátíðarsal skólans (skyldumæting)
  • 19. maí kl. 11. Brautskráning í hátíðarsal skólans (nemendur mæta kl. 10.30)
Lesa meira
 

Prófatími - 3.5.2012

prof04Prófatími stendur nú yfir í FÁ. Þessi tími er gleðilegur því nemendur sjá fram á langt og gott frí frá skóla að afloknum  prófum. Tímabilið einkennist einnig af auknu álagi og prófstressi. Það er því mikilvægt að skipuleggja tíma sinn vel, gæta að mataræði og fá góðan nætursvefn. Nemendur eru minntir á að mæta tímanlega í próf og taka skilríki með sér. Nánari upplýsingar um prófareglur eru á heimasíðu skólans. Próf dagskóla má sjá hérog próf fjarnáms sjást með því að smella hér Lesa meira
 

Dimmisjón í FÁ - 26.4.2012

dimm03Útskriftarnemar tróðu upp með hefðbundnum hætti síðastliðinn föstudag. Búningar hópsins voru með tvenns konar sniði. Sumir voru skrautleg hirðfífl en aðrir bláklæddir „Jokers“ í anda Batman myndanna. Í salnum var sýndur sprenghlægilegur myndbandsannáll og síðan voru einstaka kennarar kallaðir upp á svið og heiðraðir fyrir góð störf. Að síðustu var öllum jókerum boðið upp á kennarastofu í kökur og ávexti.

Lesa meira
 

Dagur umhverfisins - 24.4.2012

brimvikDagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur þann 25. apríl næstkomandi. Að þessu sinni ber daginn upp á 250 ára fæðingarafmæli náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar sem dagurinn er tileinkaður og bera hátíðarhöldin þeirra tímamóta nokkur merki. Sveinn bjó og starfaði í Mýrdal um áratuga skreið.

Hefð hefur myndast fyrir því að nemendur og kennarar klæðist grænu þennan dag. Umhverfisráð skólans verður síðan með dagskrá í matsalnum í hádeginu.

 

Fyrstu verðlaun í japanskri ræðukeppni - 23.4.2012

japanHanna Margrét Pétursdóttir vann fyrstu verðlaun í japanskri ræðukeppni sem fram fór í MH 23. apríl. Fjórir nemendur frá FÁ tóku þátt í keppninni og vann Hanna verðlaun í flokki nemenda sem búnir eru að læra japönsku í meira en eitt ár. Kennari hennar, Sumi Gohana, segir að Hanna hafi staðið sig frábærlega og flutt áhugaverða ræðu reiprennandi. Það var sendiráð Japans sem stóð fyrir keppninni í samstarfi við Fjölbrautaskólann við Ármúla og Menntaskólann við Hamrahlíð.  Frétt um keppnina birtist á RÚV og má sjá hana hér.            

Lesa meira
 

Söngkeppni FÁ sést nú í Sjónvarpi FÁ - 19.4.2012

erlaNemendur í BÍÓ-áfanga tóku upp söngkeppni FÁ sem haldin var í FÁ í febrúar. Nemendurnir hafa nú klippt saman upptökurnar og gert klárar til sýningar á Sjónvarpi FÁ. Einungis þarf að smella á sjónvarpið hér á síðunni hægra megin til að sjá keppnina í heild sinni.

Lesa meira
 

Jafnréttisdagur í FÁ - 15.4.2012

jafn2Jafnréttisdagurinn í FÁ verður haldinn mánudag 16. apríl og eru allir hvattir til að mæta í bleikum klæðnaði og ræða jafnréttismál jafnt utan sem innan kennslustunda. Dagskrá verður í sal skólans frá 10.15 - 12.00. Nemendur í mannréttindaáfanga kynna áfangannn og vinnu sína. Hjálmar G. Sigmarsson frá jafnréttisstofu flytur síðan erindið Skiptir kyn máli? - Jafnréttismál og kynjafræði. Í umfjöllun sinni fjallar Hjálmar m.a. um nýjan kynjafræðiáfanga sem verður kenndur næsta haust.

 

Vorið kemur heimur hlýnar - 9.4.2012

vorPáskahátíð er nú að baki og hefst kennsla að nýju 11. apríl samkvæmt stundaskrá. Krókusar sem standa í blóma og brum á trjám minna okkur á að lífið er sterkara en dauðinn og að framundan er vor og sumar. Vorinu fylgir fuglasöngur en einnig miklar annir fyrir menn og dýr. Eftir eru tólf kennsludagar af önninni og hefjast próf 30. apríl. (Próftöflu dagskóla má sjá hér.)

Lesa meira
 

Söngvakeppni starfsbrauta - 29.3.2012

song71aFimmtudag 29. mars var haldin Söngvakeppni starfsbrauta. Keppnin fór fram í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og var salurinn troðfullur af keppendum og áhorfendum frá 18 skólum á landinu. Stemningin var mikil og greinilegt að mikill undirbúningur var að baki atriðunum. Það var Verkmennaskólinn á Akureyri sem sigraði.

Að loknum úrslitum var slegið upp balli og tjúttað fram yfir miðnætti.

 

Lesa meira
 

Umhverfisvika 26. - 30. mars 2012 - 26.3.2012

Dagskrá:Grænfáninn

Mánudagur:  Umhverfisvikan sett á steypunni kl. 10.00.

Myndin „Age of stupid“ sýnd kl. 11.10 í fyrirlestrarsal.

Myndin Flow sýnd kl. 11.10  í stofu M-201.

Frí í kennslustund fyrir þá sem mæta.

 

Þriðjudagur:  Grænmetismarkaður á steypunni kl. 11-13.

Fyrirlestur frá HAPP – „Hið súra við sykurinn“ í fyrirlestrarsal kl. 11.10.

Frí í kennslustund fyrir þá sem mæta.

 

Miðvikudagur:  Fatamarkaður á steypunni með þátttöku nemenda og starfsfólks.  Hvað verður í matinn í hádeginu?

 

Fimmtudagur:  Kynningar á vistvænum vörum á steypunni kl. 11-13. 

Fræðsla um lífræna ræktun kl. 11.10 í fyrirlestrarsal.

Frí í kennslustund fyrir þá sem mæta.

 

Lesa meira
 

Nemendasöngleikur - frumsýning laugardag - 23.3.2012

Í23 söngleiknum Þorparanum er skyggnst inn í veröld Klettavíkurbúa á einum merkasta degi ársins, sjálfum Sjómannadeginum. Þorpsbúarhafa í nógu að snúast við að undirbúa kaffiboð og ball kvöldsins undir dyggri forystu formanns kvenfélagsins. Þorparinn Benóný snýr til baka eftir nokkurra ára dvöl í höfuðstaðnum og aðkomumaðurinn Frímann gefur út vafasamt bæjarblað, svo ekki sé meira sagt!

 

Öll tónlist í söngleiknum er eftir Magnús Eiríksson. Með tónlistar- og leikstjórn fara Guðný Birna Ármannsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, þær skrifuðu einnig handrit.

 

Frumsýning laugardag kl. 16

Sýning þriðjudag kl. 20

Sýning miðvikudag kl. 20

Verð: 1000 kr.  (nem.) / 1500 kr.

Lesa meira
 

Forvarnadagur - Dagskrá 10-12 - 22.3.2012

Í tilefni forvarnadags verða 12 kynningar í miðálmu skólans um 45 mín. langar. Kynningarnar koma í stað hefðbundinnar kennslu. Fyrri kynningin hefst klukkan 10.15 og seinni klukkan 11.10.

 

Við fáum u.þ.b. 25 gesti í skólann til að sjá um þessar forvarnadagskrá.  Sjá nánar hér að neðan:forvarn

Lesa meira
 

Vorjafndægur - 20.3.2012

Þann 20. - 21. mars ár hvert sker sólin vorjafndægrapunktinn. Sólin stefnir þá í norðurátt yfir miðbaug himins og fer hækkandi á himninum. Þessi dagsetning markar þar af leiðandi upphaf vors á norðurhveli jarðar. Hálfu ári síðar eða 22. september sker sólin haustjafndægrapunktinn. Sólinvorjafnd stefnir þá í suðurátt undir miðbaug himins og fer lækkandi á himninum. Mynd af þessu. Þessi dagsetning markar upphaf hausts á norðurhveli jarðar. Þar sem árstíðir eru gagnstæðar á norður- og suðurhvelinu markar vorjafndægur hjá okkur komu hausts hjá íbúum í Suður-Ameríku, Ástralíu og sunnanverðri Afríku.

Aðeins 21 kennsludagur eftir til prófa

 

Allir í sund en sumir bara í pottinn - 16.3.2012

sernam03Það var hress sérnámshópur fyrir utan FÁ í morgun á leið í sund. Ragnar sagðist ætla að synda lágmark 300 metra en Guðlaugur vinur hans sagðist ætla að prufa nýju gufuna. Ástþór ætlaði að bruna á undan á hjóli en allir hinir ætluðu að labba. Vala og Bjarki ætluðu varla að gefa sér tíma til að brosa til ljósmyndarans því að þau hlökkuðu svo til að fara í pottinn. Ólafur Egill bað Pálma og Siggu að drífa sig nú af stað áður en laugin lokaði. Að lokum vildi Ragnar nefna það að Laugardalslaugin var tekin í notkun árið 1968.

Lesa meira
 

Opið hús - 15.3.2012

Opið hús verður í Fjölbrautaskólanum við Ármúla nk. fimmtudag 15. mars kl. 16.30-18.30. hopmynd

Þar munu nemendur og kennarar skólans kynna námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans.

Námsframboðið er fjölbreytt. Boðið er upp á almenna námsbraut, framhaldsskólabraut, viðskiptabraut, sérnámsbraut, fjórar bóknámsbrautir til stúdentsprófs, félagsfræðabraut, náttúrúfræðibraut, málabraut og viðskipta- og hagfræðibraut, sjö starfsnámsbrautir á heilbrigðissviði, sjúkraliðabraut, lyfjatæknabraut, tanntæknabraut, námsbraut fyrir heilsunuddara, heilbrigðis- og læknaritarabraut og námsbraut í fótaaðgerðarfræði, svo og framhaldsnám á háskólastigi fyrir sjúkraliða og lyfjatækna

Lesa meira
 

Ríkisfang: Ekkert og Reykjavík/Rotterdam - 13.3.2012

Þrikisfangað verður margt á döfinni á morgun í hádeginu í FÁ. Fyrst má nefna að í salnum verða kvikmyndaleikstjórarnir Baltasar Kormákur og Óskar Jónasson. Þeir ætla að spjalla um Reykjavík/Rotterdam og Contraband. Spjallið verður í sjónvarpsþáttarstíl og ætla nemendur í BíÓ213 að sjá um upptökur og allt sem snýr að þáttagerðinni. Þeir hafa fengið til liðs við sig efnilega spyrla sem eru nemendur í skólanum, þau Kötlu Hólm og Ólaf Júlíusson.  

Áhorfendur þurfa að mæta tímanlega áður en upptaka hefst. Salnum verður lokað kl. 12.10 og stendur upptaka til 12:50

 

Sigríður Víðis blaðakona verður einnig gestur í FÁ á morgun. Hún verður í stofu M202 og segir frá bók sinni, Ríkisfang: Ekkert.  Bókin hefur fengið frábærar viðtökur en í henni segir hún frá palestínskum flóttakonum á Akranesi og bakgrunni þeirra.

Mannréttindi, flóttamenn, blaðamennska, bíómyndir og fleira til umfjöllunar í M202 og í salnum. Allir velkomnir.

Lesa meira
 

Keppni  verkgreina í Háskólanum í Reykjavík - 13.3.2012

8. og 9. mars tók sjúkraliðabraut skólans þátt í keppni verk-og iðngreina sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík.  Þetta var í fyrsta skipti sem sjúkraliðabrautir framhaldsskóla takkva þátt í keppninni.

FÁ sendi tvö tveggja manna lið í keppnina og lentu þau bæði í 2. sæti. Lið frá FB varð í fyrsta sæti

Keppnin fór þannig fram að nemendur þurftu að annast sjúklinga við tilteknar aðstæður og sýna þar hæfni sína og  kunnáttu. Þeir sem léku sjúklingana voru reyndir sjúkraliðar.

Allir keppendur fengu viðurkenningarskjal og verðlaunapenning frá mótshöldurum og Sjúkraliðafélag Íslands gaf öllum  þátttakendum vinnuúr.

Þær sem tóku þátt í keppninni fyrir FÁ voru: á mynd frá vinstri: Saga Ólafsdóttir, Kristbjörg Gunný Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir og Rakel Ósk Þorsteinsdóttir.

 

Vörumessa í Smáralind - frumkvöðlafræði - 9.3.2012

frumkv01Junior Achievement á Íslandi stendur fyrir vörumessu í Smáralind nú um helgina til að efla unga frumkvöðla á Íslandi. Meðal frumkvöðlanna eru nemendur í FÁ sem hafa unnið að vöru- og markaðsþróun ásamt kennara sínum Petru Bragadóttur. Nemendurnir stofnuðu fyrirtækið IceCards og gáfu út spilið FlippFlopp sem innheldur látbragðsleiki, tilvitnanir o.fl. Einnig var stofnað fyrirtækið Bjást – Nemanudd sem hefur það að markmiði að kynna nuddnema skólans og koma þeim á framfæri.

Frumkvöðlarnir verða í Smáralind um helgina og taka vel á móti þeim sem vilja kynna sér fyrirtækin.

Lesa meira
 

ÍÞR141 - fjallganga á laugardag! - 7.3.2012

geita06Önnur fjallganga annarinnar var 18. febrúar. Gengið var á Geitafell í Þrengslum (516 m). Gangan hófst við Sandfell og var gengið sunnan við fellið yfir Þúfnavelli og þriggja km leið að Geitafelli. Gangan upp var tiltölulega létt en þeir sem voru illa skóaðir áttu í erfiðleikum með að fóta sig í hálum snjóþöktum brekkunum. Á toppnum var ótrúlegt útsýni til allra átta í heiðskíru veðri og 12 stiga frosti. Lengst í austri var Eyjafjallajökull en nær mátti sjá Heklu. Reynt var að finna aðra leið niður en eftir vettvangsathugun þótti öruggast að fara sömu leið til baka. Nokkrir þátttakendur voru svo forsjálir að taka með sér rassþotur og gátu brunað niður fjallshlíðina. Allt gekk að óskum á bakaleiðinni og var hópurinn kominn til Reykjavíkur klukkan 14. (Myndband úr ferðinni má sjá hér!)

Laugardag 10. mars verður þriðja fjallganga annarinnar og verður þetta næst síðasta gangan.Lagt verður af stað með rútu frá FÁ kl 9:00 og keyrt verður að Vindáshlíð í Kjós. Þaðan verður gengið upp á Sandfell (384)og síðan niður í Seljadal. Fylgt verður gamalli þjóðleið áleiðis að Fossá í Hvalfirði. Leiðin er um 8 km löng. Spáð er rigningu svo mælt er með viðeigandi fatnaði. Skráningargjald er 500 krónur og fer skráning fram á skrifstofu skólans.

Lesa meira
 

Hvað borðuðu Íslendingar 2010-2011? - 6.3.2012

maturElva Gísladóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingar hjá Landlæknisembættinu halda 20 mínútna erindi í hádegishléinu í salnum miðvikudag 7. mars. Þær kynna helstu niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010–2011. Erindið er öllum opið.

Að könnuninni stóðu Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala háskólasjúkrahús og náði hún til fólks á aldrinum 18-80 ára. Hliðstæð rannsókn fór síðast fram árið 2002.

Lesa meira
 

Árdögum lokið - 5.3.2012

Árdagar tókust vel, skemmtileg og efnismikil dagskrá alla daga. Skólinn þakkar árdaganefnd  fyrir vel unnin störf, sömuleiðis nemendaráði og starfsfólki sem lagði fram ómetanlega vinnu.

Myndir frá árdögum

 

Tískusýning í FÁ - 2.3.2012

tiska

Tískusýning verður haldin í FÁ klukkan 20  föstudagskvöld.

Sýnd verða föt frá Andersen og Lauth, Volcano Design, NTC, SMARS, Gallery 17, Nostalgíu, Kron Kron, Nikita, Júník, Jack and Jones, Warehouse, Saints, GK RVK, Kormáki og Skildi og Kroll. Kynnir er Haffi Haff.

Lesa meira
 

Árdagar í FÁ - Dagskrá - 28.2.2012

 „Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn með þér“, söng Vilhjálmur Vilhjálmsson fyrir 46 árum og spáði þá fyrir hvernig heimurinn yrði árið 2012. Á árdögum að þessu sinni verður horft til baka og skoðaðir áratugirnir 1960-1990. Tónlist, fatnaður og kvikmyndir þessa tímabils verða til umfjöllunar. Einnig verða stutt námskeið og fyrirlestrar um hin ólíklegustu málefni. Þar má nefna að hægt verður að hrista sig í  magadansi og fá axlanudd á miðvikudag, fara í hugleiðslu og pönkast á fimmtudag og enda svo með kynjafræði og karókí á föstudag.

Árdagar verða settir kl. 9.45 miðvikudag með því að Erna Hlín sigurvegari Söngkeppni FÁ syngur eitt lag.

Nemendur verða að taka fullan þátt í árdögum miðvikudag, fimmtudag og föstudag til að fá merkta viðveru. Lágmarks þátttaka eru 8 límmiðar. Hægt er að taka þátt í þrem viðburðum í viðbót og vinna af sér eitt skróp!

Dagskrá miðvikudag

Dagskrá fimmtudag

Dagskrá föstudag

Kvikmyndasýningar

Lesa meira
 

FÁ nemandi í þróunarstarfi - 27.2.2012

kari2 Í janúar fór Karítas Ósk sem er nemandi í FÁ til Kenía á vegum ABC-hjálparstarfs. Hún hefur lengi haft áhuga á þróunarstarfi og var búin að sitja 10 vikna námskeið hjá ABC skólanum. Hún flaug til Nairobi og heimsótti skóla sem rekinn er af ABC. Börnin í skólanum tóku vel á móti henni með dansi og söng.

Karitas segir að hún hafi tekið eftir því hversu vel börnin í ABC-skólunum hafi verið haldin miðað við önnur börn í Nairobi. Þarna hafi hún séð greinilega hvað peningarnir nýtast vel sem koma frá íslenskum styrktaraðilum. Karítas og hópurinn sem hún var með fór einnig um borgina og ræddi við heimilislaus börn og börn sem voru langt komin í límneyslu.

Karítas minnir á að það þurfi nýja  íslenska styrkaraðila fyrir skólann í Nairobí og einnig fyrir skóla sem verið er að byggja í Massaia þorpi úti langt fyrir utan borgina. Það kostar 3000 krónur á mánuði að styrka eitt barn. Karítas segist óska þess að vel gangi að fjölga styrkaraðilum. ABC-skólarnir og starfið á vegum samtakanna gefur fjölda barna von um að vaxa og þroskast jafn vel og hennar eigin sonur gerir hér á Íslandi.

Lesa meira
 

Malmö Open - 20.2.2012

Nokkrir félagar úr sunddeild Aspar tóku þátt í alþjóðlegu móti í Malmö helgina 10. til 12. febrúar. Á þessu móti er keppt í 12 mismunandi íþróttagreinum fatlaðra og er sund ein þeirra. Margar þjóðir taka þátt í  Malmö Open. Sunddeild  Aspar hefur oft tekið þátt í þessu móti síðustu 20 árin, oft með góðum árangri.dis

Daníel Ísak Sölvason nemandi skólans keppti í fjórum einstaklingsgreinum í flokki 18 ára og yngri og í tveim boðsundgreinum með félögum sínum í Öspinni. Hann vann gull í öllum einstaklingsgreinunum (4 gull)  og eitt silfur og eitt brons í boðsundi.

Daníel byrjaði að æfa sund með Öspinni fyrir einu og hálfu ári síðan og er þetta fyrsta alþjóðlega sundmótið sem Daníel tekur þátt í og er óhætt að segja að hann hafi staðið sig með mikilli prýði.

Lesa meira
 

Háskóladagurinn laugardag - 17.2.2012

háskolaHáskóladagurinn verður laugardag 18. febrúar kl. 12 – 16. Nemendur eru hvattir til að nota daginn vel og kynna sér námsframboð skólanna. Fulltrúar deilda innan þeirra verða á staðnum og svara spurningum. Einnig verða kynningar á skólum í Danmörku og Svíþjóð. Nánari upplýsingar er að finna á http://www.haskoladagurinn.is/

Lesa meira
 

Útivist- og fjallgöngur ÍÞR141 - 14.2.2012

 

grimm05Fyrsta ganga annarinnar var á Grimmannsfell (484 m) 4. febrúar 2012. 45 nemendur tóku þátt ásamt tveim fararstjórum. Veður var hlýtt, lágskýjað og þoka lá yfir toppi fellsins. Gengið var upp frá Katlagili í Helgadal og stefnt á Flatafell sem er í 420 hæð. Þar skiptist hópurinn og hélt hluti hans áfram í suðaustur áleiðis að toppi fellsins en hluti tók stefnuna norðvestur í átt að Gljúfrasteini. Frá Flatafelli að toppi Grimmannsfells var tveggja km létt ganga. Það rofaði aðeins til þegar á toppinn var komið og við blöstu sundin í vestri. Einnig var gott útsýni yfir til Mosfells (216 m) og Helgafells (276 m). Gangan niður að Gljúfrasteini gekk vel en taka þurfti GPS-stefnuna af og til í þokunni. Mikil gleði greip um sig í hlíðinni fyrir ofan Gljúfrastein. Þar var ennþá snjór í hvilftum og var hægt að renna sér niður á fleygiferð á rassinum. Frá Gljúfrasteini var haldið heim klukkan hálf tvö. (Myndband frá ferð má sjá hér.)

Næsta ganga annarinnar verður á Geitafell 18. febrúar. Þátttakendur þurfa að skrá sig og greiða óafturkræft þátttökugjald 500 kr. á skrifstofu skólans fyrir fimmtudag.

Lesa meira
 

Erna Hlín sigurvegari í Söngkeppni FÁ - 12.2.2012

erlaErna Hlín Guðjónsdóttir sigraði í Söngkeppni FÁ síðastliðinn föstudag. Hún söng lagið Nei sko. Erna Hlín keppir fyrir hönd skólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna. 

Í öðru sæti var  Kolfinna Kjartansdóttir með lagið Speechless og í þriðja sæti Elvar Rúnarsson  með lagið To be with you Lesa meira
 

Söngkeppni FÁ í kvöld kl. 20.00 - 10.2.2012

 

songsongÍ kvöld verður haldin Söngkeppni FÁ þar sem söngstjörnur skólans keppa um glæsileg verðlaun og þátttökurétt í Söngkeppni framhaldsskólanna 2012. Söngkeppnin hefst kl. 20 í sal skólans. Salurinn hefur tekið miklum breytingum í vikunni og breyst úr matsal í glæsilega tónleikahöll.

Dómarar eru Andrea Gylfa, Íris Hólm og Hlynur söngvari í hljómsveitinni 1860. Milli söngatriða verða flutt ýmis skemmtiatriði. Hópur nemenda hefur lagt nótt sem nýtan dag við að undirbúa kvöldið.

Mætið öll í kvöld og hvetjið söngvarana – til sigurs!

Lesa meira
 

Snyrtilegustu borð vikunnar - 6.2.2012

 

umhverfiNú stendur yfir samkeppni um snyrtilegustu borð vikunnar á steypunni. Eitt stórt og eitt lítið. Fyrsta útnefning fer fram á mánudaginn og svo alla mánudaga það sem eftir lifir annar. Sérstaklega verður nostrað við vinningsborðin; dúkar á borðum, mýkri stólar, spil og ávaxtakarfa. Það er því til mikils að vinna. Nú er um að gera að ganga jafnóðum frá eftir sig, flokka og halda borðinu og umhverfi þess hreinu því enginn veit hvenær „eftirlitsmenn“; nemendur úr umhverfisráði og nemendaráði eiga leið um og skrá hjá sér umgengniseinkunn.

Lesa meira
 

ÍÞR141 - Ganga á laugardag - 1.2.2012

gangaÁ laugardag fara nemendur í útivistar- og fjallgönguáfanganum ÍÞR141 í fyrstu gönguferð annarinnar. Lagt verður af stað frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla klukkan 9 stundvíslega. Áætluð heimkoma er kl. 14. Nemendur þurfa að staðfesta þátttöku með því að greiða 500 krónur á skrifstofu skólans fyrir fimmtudag. Verð fyrir þá sem mæta óskráðir í rútu samdægurs er 1000 kr. (Með fyrirvara um laus sæti.)

Nemendur sem mæta illa klæddir að mati fararstjóra fá ekki að fara með.

Kynningarfundur verður haldinn miðvikudag kl. 12.05 í sal skólans. Nánari upplýsingar gefur Úlfar Snær (usa@fa.is).

Lesa meira
 

Fjarnám hafið - 23.1.2012

 

fjarnam01Fjarnám hófst á fimmudag þegar lykilorð voru send til nemenda. Enn á hluti skráðra nemenda eftir að greiða skólagjöld og fá send lykilorð sín. Mikilvægt er að gera það hið fyrsta því að gíróseðlar ógildast eftir kennsla er komin á fullan skrið í áföngunum. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá fjarnámskrifstofu FÁ í síma 525-8800 eða fjarnam@fa.is

Lesa meira
 

Skráning í Söngkeppni FÁ - 12.1.2012

 

llilja_songurÍ skólanum okkar er fjöldinn allur af hæfileikaríku fólki og þar á meðal fjöldi af góðum söngvurum. Skólinn leitar því að keppendum í Söngkeppni FÁ 10. febrúar. Sigurvegari keppir síðan fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna sem verður haldin í apríl. Í fyrra keppti Lilja Björk Jónsdóttir og stóð hún sig með miklum sóma. Hún söng lagið Þú brosir (sem hægt er að hlusta á hér).

Það geta allir skráð sig til keppni í síma 772-1138 (Lilja) eða 662-6011 (Gummi). Sýndu hæfileika þína, kastaðu burt feimninni og drífðu þig í að skrá þig!

(Mynd hér til hliðar af Lilju er tekin af www.songkeppni.is)

Lesa meira
 

Námsferill, skipulag og reglur - stutt námskeið miðvikudag - 9.1.2012

 

nemendur_1Náms- og starfsráðgjafar skólans bjóða upp á 30 mín námskeið alla miðvikudaga í vetur. Það þarf ekki að skrá sig á námskeið heldur aðeins að mæta í stofu N101 kl. 12.10. Fyrsta námskeiðið verður 11. janúar. Fjallað verður um námsferil, skipulag og reglur.

Næstu námskeið í janúar fjalla síðan um tímaskipulag og minni og lestur námsbóka. Fylgist með á heimasíðu námsráðgjafar http://www.fa.is/nam/namsradgjof/.

Lesa meira
 

Skólabyrjun á vorönn 2012 - 3.1.2012

 

armuliFjölbrautaskólinn við Ármúla óskar öllum gleðilegs árs.

·   Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda  miðvikudag 4. janúar 2012. Bókalisti og stundatafla á "Mínar síður"

·   Starfsmannafundur verður miðvikudag 4. janúar kl. 10.00 – 12.00.

·   Töflubreytingar verða miðvikudag 4. janúar kl. 12 – 15 og 5. janúar kl. 10 – 15.

·  Kynning fyrir nýja nemendur verður fimmtudag 5. janúar kl. 13 í sal skólans.

·  Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudag 6. janúar.

Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica