Fréttir

BÍÓ213 efna til fundar á Steypunni í hádeginu.

1.3.2010


Nemendur áfangans BÍÓ213 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla hafa efnt til fundar á þriðjudaginn 2. mars í skólanum sem nefnist „Upp úr skotgröfunum - umræða um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar". Áætlað er að fundurinn taki 40-50 mínútur.

Hópurinn hefur boðið Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, Páli Magnússyni, útvarpsstjóra RÚV, Ragnari Bragasyni leikstjóra og Hrönn Kristinsdóttur, framleiðenda, að taka þátt á fundinum, og hafa þau staðfest komu sína.

Markmið fundarins er að stuðla að málefnalegri umræðu um framtíð kvikmyndagerðar hérlendis. Fundurinn verður tekinn upp, unninn og síðan sýndur fullkláraður á heimasíðu skólans.

Fundarstjórar/Þáttastjórnendur eru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, nemandi við skólann.

Hópurinn er undir handleiðslu Þórs Elís Pálssonar kvikmyndagerðamanns sem kennir við skólans, og snýr verkefnið að upptöku og vinnslu á sjónvarpsefni.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.