Busavígsla
Nýnemar úr 10. bekk voru boðnir velkomnir í skólann í dag með busavígslu. Að loknum öðrum tíma glumdu lúðrar og sírenur og hópnum var smalað saman á Steypunni af eldri nemendum. Síðan var hópurinn leiddur jarmandi út á tún þar sem búið var að útbúa nokkurs konar þrautabraut. Stefnt var að því að minnka subbugang og ógeðslegheit í busavígslunni þetta árið. Stóðu stjórnendur skólans í miðri þvögunni og höfðu auga með atganginum sem virtist fara fram með skásta móti. Að loknu léttu sprelli og ógeðsdrykk gæddu nýnemar sér á grilluðum pulsum og límonaði í góða veðrinu fyrir framan skólann sinn.
(Myndasafn frá deginum má sjá með því að smella hér!)
