Skólinn

Nýnemaferð í Fljótshlíð

1.9.2010

Nemendur eiga að koma í skólann kl. 8.30 fimmtudaginn 2. september. Rúturnar fara af stað kl.9.00 frá skólanum. Komið verður heim föstudaginn 3. september um kl. 15.00. Nemendur eru beðnir að undirbúa sig fyrir hæfileikakeppni.

Allt sem nemendur taka með sér er á þeirra ábyrgð og mælumst við til þess að nemendur taki ekki með sér verðmæta hluti eins og tölvur, tónhlöður (ipod) og dýrar myndavélar.

Nýnemar þurfa að koma með:

-          Svefnpoka, kodda

-          Allan mat nema kvöldmat á fimmtudagskvöldið

-          Klæðnað eftir veðri, góða gönguskó, hlý föt

-          Vasaljós

Það sem nauðsynlegt er að taka með sér er:

-          Spil, bók og aðra afþreyingu

-          Fótbolta

Nemendur eru beðnir að ganga vel um í ferðinni og ekki verður farið frá svæðinu fyrr enn skálavörður er ánægður. Slæm umgengni kemur í bakið á okkur næsta dag J

 

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica