Skólinn

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla

21.12.2011

 

Brautskráning fór fram 17. desember kl. 11 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Útskrifaðir voru 75 nemendur frá skólanum, þar af einn af tveim brautum. 

Skólameistari, Gísli Ragnarsson  setti athöfnina og félagar úr skólakórnum sungu nokkur lög. Fjóla Björgvinsdóttir skrifstofustjóri lét nýlega af störfum og var henni þakkað fyrir gott starf.

 Aðstoðarskólameistari, Ólafur H. Sigurjónson flutti skýrslu um skólastarfið. Hann fjallaði m.a. um verkefnið Nám er vinnandi vegur. Verkefnið felst í því að öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri og sem uppfylla skilyrði var tryggð skólavist nú í haust. Ætlunin er að minnka brottfall framhaldsskólanemenda úr 30% niður í 10% fyrir árið 2020. Áætluð útgjöld ríkissjóðs og Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna átaksins nema tæpum 7 milljörðum króna á árunum 2011-2014. Ólafur sagði að þetta verkefni væri fagnaðarefni og brýnt að það takist vel. 

Skólameistari og kennslustjórar afhentu síðan einkunnir og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi fékk Simona Vareikaité en hún fékk ágætiseinkunn í 29 námsáföngum. Simona fékk einnig viðurkenningu fyrir frábæra skólasókn. Loks fékk Simona viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar.

Aðrir sem viðurkenningu hlutu eru:

Helga Árnadóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í náttúrufræðigreinum.

Eva Hrund Pétursdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum lyfjatækni.

Helena Aagestad fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í verklegri og bóklegri hjúkrun.

Sigrún Tryggvadóttir fékk viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur í námsgreinum læknaritarabrautar.

Eva Rós Gústafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur í frönsku.

Eyrún Árnadóttir fékk viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur í frönsku.

Sunneva Björk Þorvaldsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í dönsku og þýsku. Danska sendiráðið gaf dönskuverðlaunin.

Sanna Magdalena Mörtudóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í ensku.

Karen Björnsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í félagsfræði og sögu.

Karlotta Jóhannsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sálarfræði og uppeldisfræði.

Kristján Hafþórsson, fulltrúi stúdenta ávarpaði gesti áður en skólameistari sleit að lokum athöfninni.

utskr02utskr05utskr07utskr09utskr13utskr11utskr15utskr14utskr21utskr24autskr25utskr24utskr22utskr19utskr01

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica