Skólinn

ÍÞR141 - Ganga á laugardag

1.2.2012

 

Á laugardag fara nemendur í útivistar- og fjallgönguáfanganum ÍÞR141 í fyrstu gönguferð annarinnar. Lagt verður af stað frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla klukkan 9 stundvíslega. Áætluð heimkoma er kl. 14. Nemendur þurfa að staðfesta þátttöku með því að greiða 500 krónur á skrifstofu skólans fyrir fimmtudag. Verð fyrir þá sem mæta óskráðir í rútu samdægurs er 1000 kr. (Með fyrirvara um laus sæti.)

Nemendur sem mæta illa klæddir að mati fararstjóra fá ekki að fara með.

Kynningarfundur verður haldinn miðvikudag kl. 12.05 í sal skólans. Nánari upplýsingar gefur Úlfar Snær (usa@fa.is).

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica