Skólinn

Jónsmessuganga 22.-23. júní 2007

Gönguhópurinn Garpur stóð fyrir miðnæturgöngu upp á Heklu.

Lagt var af stað úr bænum upp úr kl. 16 fimmtudaginn 22. júní og hófst gangan kl. 20.15 frá bílastæði við Rauðaskál.

hekla1b

Hópurinn kom upp á tindinn rétt fyrir miðnæti og dvaldi þar stutta stund þar sem hvasst var á toppnum og hitastig undir frostmarki. Útsýn yfir Landmannaafréttir var óviðjafnalegt og stóðu Kaldaklofsfjöll og Torfajökull eins og sker upp úr skýjahafi.

 

Sólin settist stutt eftir miðnæti og kom hópurinn heill á húfi niður kl. 2.30.

Yngsti göngugarpur að þessu sinni var Teitur, 10 ára, en engar upplýsingar eru veittar um elsta göngugarpinn.

Myndir af göngunni verða settar inn fljótlega. 

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica