Á vorönn 2011 var ráðist í það verk að aðlaga jafnréttisáætlun Fjölbrautaskólans við Ármúla að jafnréttislögunum frá 2008 og þá sértakalega 18-23 grein þeirra sem kveða á um skýrari marmiðasetningu og eftirfylgni. Til að bregðast við þessu var jafnréttissíða Fjölbrautaskólans við Ármúla stofnuð. Á jafnréttissíðu, sem uppbyggð er sem fréttasíða, má jafnframt sjá skipulag jafnréttismála í skólanum, dagskrá jafnréttisdags, markmið og leiðir sem jafnréttisnefnd vinnur eftir til skemmri tíma og matsskýrslur. Í jafnréttisáætlun frá 2007, sem samþykkt var á kennarafundi 27. apríl 2007 má finna þau langtímamarkmið sem skólinn hefur sett sér. Unnið er að endurskoðun þessarar áætlunar og búist við að þeirri vinnu ljúki á vorönn 2012. Jafnréttisfulltrúi er ábyrgðamaður jafnréttissíðna og senda má athugasemdir á póstfangið, rober(hjá)fa.is.
