Föstudagurinn 11. mars 2011
Á kennarafundi 11.mars kynnti Ólafur H Ólafsson aðstoðarskólameistari þá hugmynd að fjarnám yrði kennt sumarið 2011. Eftirfarandi fyrirspurn var send til skólastjórnenda:
Sæll Ólafur
Hvaða áhrif mun sumarönn fjarnámsins 2011 hafa á launajöfnuð innan skólans? Hvað mun sumarönnin kosta og hvaða áhrif mun hún hafa á rekstrarafkomuna. Miða við þá kostnaðarútreikninga sem þú nefndir, þá verður einungis boðið upp á „stóru áfangana“ þ.e.a.s þá sem telja fleiri nemendur en 28. Af hverju eru þeir svona ódýrir? Hefur verið kannað hvaða áfangar það séu sem munu verða kenndir miða við reynslu síðustu anna?Hefur verið slegið á það hvaða launalegu áhrif þetta mun hafa á þá sem háar hafa tekjur hér innan skólans og þá sem bera minna úr bítum?
Bestu kveðjur
Róbert Ferdinandsson
Jafnréttisfulltrúi
