Þriðjudagurinn 5. apríl 2011
Sæll Gísli
Ég var að spá í hvort það væri í lagi að ég stefndi á að hafa Jafnréttisdaginn í skólanum miðvikudaginn 27. apríl (eftir páska)? Er að vonast til að ég geti fengið salinn og fengið fyrirlesara til að vera frá 10:15-12:50. Ég er með stjórnmálafræðina og fjölmiðlafræðina í tímum þarna og ég fengi þau til að hjálpa mér við skipulagningu. Fyrirlestur klukkan 12 væri svo sá fyrirlestur (eða umræða) sem væri hvað opnastur.
Svo er það annað mál. Ég hef verið núna þrjú ár jafnréttisfulltrúi og mig minnir að það hafi átti að auglýsa þetta aukastarf á tveggja ára fresti. Mér finnst eins og málum er háttað í skólanum að ég sýni frumkvæði og hvetji til að starfið sé auglýst. Mér hefur fundist þetta áhugavert og skemmtilegt aukastarf en felst líka á þá gagnrýni að ég hef ekki verið sá sýnilegasti. Það þarf einnig að huga að skipulagsbreytingum þannig að þau samræmist meir núgildandi jafnréttislögum. Eitt atriði er að virkja jafnréttisráð en ég gæti til dæmið boðið mig í það á meðan annar tæki við þessum daglega rekstri sem ég er að stússast í sem jafnréttisfulltrúi. Hvað segir þú um þetta?
Bestu kveðjur
Róbert Ferdinandsson
