Mánudagur 30. janúar 2012
Verið er að vinna við gerð jafnréttisáætlunar. Í dag er verið að kanna hvort FÁ eigi að bjóða upp sér áfanga í kynjafræðum til að uppfylla lagaskyldur sínar gagnvart jafnréttislögum. Jafnréttislög segja að "nemendur í framhaldsskólum skulu hljóta fræðslu um jafnréttismál." Eftirfarandi bréf var sent til skólayfirvalda:
"Ég er að velt því fyrir mér hvort stofna þurfi sérstakan áfanga í kynjafræðum vegna þeirra ákvæða sem tilgreindir eru í þessari setningu: "Nemendur í framhaldsskólum skulu hljóta fræðslu um jafnréttismál. M.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, s.s. í fjölskyldu- og atvinnulífi."
Ef við skoðum þetta markmið "Nemendur í framhaldsskólum skulu hljóta fræðslu um jafnréttismál" að þá sé ég nokkrar leiðir
1. Hafa sérstakan áfanga í kynjafræðum sem er kjarni á öllum brautum
2. Hafa sérstakn áfanga í kynjafræðum sem er val
3. Hafa umfjöllun í Mannréttindaáfanganum og verkefni (hef þegar talað við Margréti og Bryndísi og nefnt hugmyndina)
4. Koma umfjölluninni við í öðrum áföngum, eins og Herdís gerir í ensku þar sem stór partur af náminu hefur mikinn snertiflöt við ofangreint markmið.
5. Taka jafnréttismál, a.m.k. í einum tíma í hverju áfanga sem skólinn bíður upp á?
6. Lenga jafnréttisdaginn upp í viku eins og gert er í MK
7. Bland af sumu eða öllu ofangreindu.
Hvað af þessu teljið þið að uppfylli lögin og ofangreinda markmiðasetningu?"
