Fimmtudagur 22. mars 2012

22. mars 2012
Hildur Lilliendahl hélt fyrirlestur á forvarnardegi Fjölbrautaskólans við Ármúla sem heitið Karlar sem hata konur. Hildur lærði kynjafræði í Háskóla Íslands og hóf fyrir mánuði söfnun illra ummæla um konar sem finna má á Netinu. Ummælin eru lýsandi fyrir kvennfyrirlitningu og birtast m.a. á bloggsíðum, vefmiðlum. Ummælin gera lítið úr kynferðisofbeldis og hlutgera konur út frá kynferði. Hildur nefndi ýmis dæmi máli sínu til stuðnings. Mjög sterkt net kvenna styður Hildur í þessari baráttur, jafnvel vinkonur þekktra glæpamanna. Karlar sem elska konur er jafnframt stuðningssíða karla við baráttu Hildar. Þar má finna ummæli sem eru jákvæð í garð kvenna en Natan Kolbeinsson formaður nemandafélags Fjölbrautskólans við Ármúla er stofnandi síðunnar. Hildur opnaði fyrir umræður.

   

Af hverju eru þessir menn að setja ummælin á facebook?
Möguleg hræðsla við feminisma og skilja hvaða vanda hún er við að glíma við.
Er ekki vandræði í orðræðunni?
Á facebook er svo mikill hraði, fólk sleppir frá sér efni án þess að hugsa. Þarf ekki að kaupa sér frímerki. Hugsar ekki málið áður en það sleppir ummælum.
Hvað með skoðanafrelsi?
Hildur vill halda því hátt á lofti. Vildi t.d. ekki láta fjarlægja ummæli þessara mann. Vill að ummælin komi í ljós. Hildur hefur verið þögguð og lokað á hana á Facebook. Hún vill að umræðan sé þarna úti, óritskoðuð. Skoðanir hennar eru mjög „hættulegar“ þar sem hún er í viku banni á facebook sem á sér skýringar í því að nógur fjöldi facebook notanda hefur kvartað undan boðskap hennar. Hildur hefur þurf sæta hótunum að ýmsum toga sem hún lætur ekki hafa áhrif á sig.
Hefur orðið framför eða afturför í jafnréttisbaráttunni
Kynslóðin sem ól upp Hildi kynnti henni fyrir kvennréttindabaráttu og kvennfrídeginum. Foreldrar hennar vilja þó ekki kenna sig við feminism, heldur telja þeir sig jafnréttissinna. Þetta var það sem var í gangi fyrir 20 árum síðan. Útlitsdýrkun og yfirborðshyggjan síðustu 15 ára er síðan afleiðing kláms og markaðshyggju. Netið hefur haft sitt að segja í þeirri þróun. Síðastu fimmtán hafa öll gengið út á það að eignast glerborð.
Er feminismi skammaryrði? Hvað finnst þér vera feminismi?
Feministinn vill gera eitthvað í málunum en jafnréttissinn ekki. Jafnréttissinninn segir „hér er launa munur“ og situr aðgerðalaus. Feministinn vil grípa til aðgerða. Mikið af umræðu um fiminisma byggir á miklum fordómum og hræðslu.
Af hverju hefur hugtakið feminismi fengið á sig slæmt orðspor?
Sumar aðgerðir hafa þótt róttækar. Andúðin er kraumar alltaf undir yfirborðinu.
Einn kennarai spurði síðan „Hvernig er umræðan í kringum ykkur krakkar? Er líf í ykkur?
Einn nemandi tók til máls og nefndi sem dæmi að það mætti ekki mætti gefa börnum brjóst á kaffihúsi. Þetta er fáránlegt mál og mannréttindamál. Ýmsir áfangar taka á þessum málum. Enska 800 sem er kvikmyndaáfangi tekur kynímyndir til gagnrýninnar umræðu. Umræða er þörf og fræðsla þarf að fara fram á öllum skólastigum.
Nemandi spurði: „þarf ekki að taka alvöruvandamálin til umræðu en ekki hvernig skapahárkvenna séu?“
Hildur var sammála þessu og sagði að það þyrfti auðvitað koma fræðslunni sem first inn grunnskólana þar sem börnin eru móttækilegust. Börn fæðast ekki karlrembur.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica