Skipulag
Skipulag jafnréttismála í Fjölbrautskólanum við Ármúla
Jafnréttisdagur Fjölbrautskólans við Ármúla er í kringum 16. apríl ár hvert. Á þeim degi tilnefnir jafnréttisráð skólans, sem er opið málfundafélag fulltrúa í jafnréttisnefnd. Jafnréttisnefnd starfar í umboði fundarins í eitt ár í senn og markar stefnuna fyrir veturinn. Nefndin kynnir svo niðurstöður sínar á jafnréttisdeginum 16.apríl eða eins og þurfa þykir í tengslum við aðra viðburði skólans. Jafnréttisárinu er lokað með skýrslu um jafnréttismál sem jafnréttisráð og jafnréttisfulltrúi vinna í sameiningu. Jafnréttisfulltrúi starfar eftir þeim áherslum sem jafnréttisnefnd mótar hverju sinni og sér um daglegan rekstur og eftirfylgni.

Mynd sýnir félagsskipulagið á bak við jafnréttismál í Fjölbrautaskólanum við Ármúla
(Síðast uppfært 2.11.2012)
