Skólinn

Vikupistill skólameistara (2010/1)

Skólabyrjun

Ég óska nemendum og starfsmönnum FÁ gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnu ári. Ég vænti þess að skólastarfið árið 2010 verði árangursríkt. Svo mun verða ef við leggjum okkur öll fram.

Þær breytingar eru frá haustönn að fimm starfsmenn hætta störfum nú um áramótin. Þetta eru kennararnir Guðbjörg Andrésdóttir, Selma Ragnarsdóttir og Þórunn Óskarsdóttir og matráðskonurnar Sigrún Jóhannsdóttir og Svala Þyrí Steingrímsdóttir. Ég vil þakka þeim fyrir góð störf við skólann.

 

Í dagskólanum eru milli 8 og  9 hundruð nemendur og við gerum ráð fyrir um 1300 fjarnámsnemum. Ef það gengur eftir verða ársnemendur skólans um 500 á vorönn sem er í takt við fjárlög ársins sem gera ráð fyrir að skólinn skili 990 ársnemurm á árinu 2010. Þetta er töluverð fækkun frá því sem verið hefur undanfarin ár. Skólinn fékk greitt, samkvæmt fjárlögum, fyrir 1145 ársnema á árinu 2009 en leiðréttar áfangaskrár samkvæmt prófaskýrslum benda til að þeir hafi verið um 1300. Ekki eru miklar líkur til að umfram nemendur verði bættir miðað við reynslu síðustu ára.

 

Helstu viðburðir í skóladagatali vorannar 2010 eru þessir: Kennsla í dagskóla hefst miðvikudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá. Innritun í fjarnám er frá 8. til 14. janúar og kennsla hefst í fjarnámi 18. janúar. Nemendur geta hætt í áföngum og sloppið við úrsagnarskráningu í INNU fram til 27. janúar. Árdagar eru frá 2. til 4. mars. Páskafrí er frá 29. mars til 6. apríl og kennslu lýkur svo föstudaginn 30. apríl. Vorpróf hefjast síðan mánudaginn 3. maí og lýkur mánudaginn 17. maí. Sýning prófúrlausna og staðfesting vals verður miðvikudaginn 19. maí og brautskráning föstudaginn 21. maí.

 

Fjárhagsstaða skólans er erfið. Við fengum gríðarlegan niðurskurð í fjárlögum, meiri en nokkur annar framhaldsskóli. Eins og lög gera ráð fyrir er rekstraráætlun stillt upp þannig að skólinn sé yfir núlli í árslok 2010. Til þess að það sé hægt þurfti að skera niður allt sem hægt er að komast af með. Ekki er hægt að auka kostnaðinn umfram það sem fram kemur í rekstraráætlun.

 

Nýbygging skólans er á áætlun og verða salir og mötuneyti nemenda tekin í notkun næsta haust. Nýju vesturálmurnar tvær verða síðan teknar í notkun haustið 2011. Framkvæmdum sem þessum fylgir ávallt einhver truflun en verktakinn hefur ávallt tekið vel í kvartanir okkar og erum við þakklát fyrir það.

 

Kennslukönnun fór fram á haustönn. Því miður var þátttaka ekki alveg nógu mikil en er þó alltaf að aukast. Heildarniðurstaða kennslukönnuninnar er mjög vel ásættanleg fyrir skólann og það er greinilegt að nemendur telja kennara skólans framúrskarandi. Við munum fylgja kennslukönnuninni eftir með starfsmannaviðtölum sem kennslustjórar sjá um.

 

Ég sótti kennslutíma hjá nokkrum kennurum á vorönn í fyrra meðal annars til að rifja upp hvernig kennslustund fer fram þar sem nokkuð er liðið síðan ég kenndi síðast. Ég vil ég gjarnan halda þessu áfram. Ef einhverjir vilja síður fá mig í heimsókn bið ég þá um að láta mig vita og mun ég að sjálfsögðu virða þær óskir.

 

Skólarnir eiga samkvæmt nýju framhaldsskólalögunum að semja námsbrauta- og áfangalýsingar en nýir áfangar og námsbrautir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sem ráðuneytið setur. Nokkuð óljóst er ennþá hver þessi skilyrði eru en það skýrist vonandi fljótlega.

 

Við höfum þegar samið tvær námskrár, framhaldsnám fyrir sjúkraliða í geðhjúkrun og framhaldsnám fyrir lyfjatækna í sjúkrahúslyfjatækni. Þessar tvær námskrár eru til meðferðar í menntamálaráðuneytinu. Náminu er ætlað að vera á 4. þrepi sem í lögunum er skilgreint sem viðbótarnám eftir starfsnám eða stúdentspróf. Við teljum þessar námsbrautir jafngilda rúmlega eins árs fagháskólanámi. Þetta er nýjung á Íslandi og því eru ýmis atriði vandmeðfarin en við teljum mögulega að byrja strax á vorönn með geðhjúkrunarnámið. Námskrárnar höfum við unnið síðastliðinn tvö ár í nánu samstarfi við Landspítalann og fagfélögin.

 

Ég legg mikla áherslu á að hefja kennslu næsta haust á nýrri námsbraut fyrir nemendur sem hafa fram til þessa verið innritaðir á almenna námsbraut. Ég tel að það nám sem við höfum boðið þessum nemendahóp mæti ekki þörfum þeirra. Við höfum í gegnum árin tekið við stórum hópi nemenda sem þurfa öðruvísi nám en það sem við bjóðum þeim upp á. Þetta verður að breytast strax. Eiríkur Brynjólfsson kennslustjóri almennrar námsbrautar mun stýra námskrárvinnu þessarar nýju brautar.

 

Að sjálfsögðu munum við halda áfram að skoða allar aðrar brautir skólans m.t.t. þeirra breytinga sem framundan eru og stýra kennslustjórar þeirri vinnu.

 

Við gerum ráð fyrir að fundartími eftir kennslu á miðvikudögum nýtist fyrir námskrárvinnu.  Í því sambandi minni ég á að allir KÍ félagar fengu þann 1. ágúst 2008 einn launaflokk eða 5% launahækkun til að sinna þessu starfi. Við stefnum á að halda langan fund um námskrármál föstudaginn 5. febrúar þar sem farið verður yfir þá vinnu sem unnin hefur verið fram að þessu og framhaldið markað.

 

Kæru nemendur og starfsmenn Fjölbrautaskólans við Ármúla. Árið 2010 verður erfitt, miklir óvissutímar eru framundan. Skólinn glímir við niðurskurð sem ávallt er erfitt. Við skulum samt ekki vera svartsýn, ég er viss um að bráðum kemur betri tíð. Með það í huga skulum við hefja starfið á nýju ári.

 

Sorgarfrétt

Tien Dat Tran nemandi í FÁ lést á Landspítalum þann 26. desember eftir erfið veikindi. Hann var fæddur í Norður Víetnam þann 25. desember árið 1989 og var því réttra 20 ára þegar hann lést. Tien Dat stundaði nám hér við skólann frá haustinu 2006 og hafði lokið um 80 einingum þegar hann veiktist af krabbameini fyrir tæpu ári síðan og varð að hætta námi.  Hann gerði tilraun til að hefja nám að nýju í haust en var orðinn of veikur til að það tækist. Síðustu vikurnar dvaldi hann á líknardeild Landspítalans og andaðist þar, eins og fyrr segir, á annan dag jóla.  Við minnumst hans fyrir góða námshæfileika og létta lund og hörmum að fá ekki að hafa hann lengur í nemendahópnum. Að austurlenskum sið var ekki beðið með útförina og var hann jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. desember kl. 13 í látlausri athöfn sem var framkvæmd af íslenskum presti en með Búddísku ívafi. Starfsmenn og nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla senda fjölskyldu Tien Dat samúðarkveðjur.

Gísli



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica