Vikupistill skólameistara (2010/2)
Skólabyrjun
Skólabyrjun var með eðlilegum hætti í síðustu viku og gengu töflubreytingar vel. Samkvæmt INNU eru 901 nemandi skráður í dagskólann. Innritun í fjarnám hófst föstudaginn 8. janúar og skráðu yfir 800 nemar sig í fjarnám um helgina. Innritun í fjarnám lýkur 14. janúar. Áætlun okkar um 900 dagskólanema og 1300 fjarnema virðist því vera raunhæf.
Nám fyrir atvinnulausa
Ríkisstjórnin býður ungu fólki sem er á atvinnuleysisbótum upp á ýmis úrræði. Unga fólkið fær val um að taka þátt í ákveðnum verkefnum og halda bótum en missa þær ella. Eitt af þessum verkefnum er nám í framhaldsskóla. FÁ er einn af skólunum sem taka þátt í þessu verkefni og því er líklegt að hópur nemenda hefji nám í FÁ þann 1. febrúar. Þeir verða í sérstöku „prógrammi“ og fara ekki í núverandi áfanga dagskólans. Við gerum ráð fyrir 25 til 50 nemendum í þetta nám.
Skipulag fastra funda á vorönn
- Fundartími kennara og annarra starfsmanna er á föstudögum kl. 13.15 – 14.15. Almennir starfsmannafundir eru ákv. 4/1, 5/2, 26/2, 26/3 og 23/4.
- Fundartími vegna nýrra námskráa er á miðvikudögum kl. 14.40 – 15.40. Kennslustjórar boða námskrárfundi.
- Skólaráðsfundir eru hálfsmánaðarlega á miðvikudögum kl. 11.10.
- Skólanefndarfundir eru tveir á vorönn, fundartími er ekki ákveðinn.
- Fundartími samstarfsnefndar er ekki ákveðinn.
- Kennslustjórafundir Heilbrigðisskólans eru á föstudögum kl 11.10.
- Kennslustjórafundir bóknámsbrauta eru á föstudögum kl 9.05.
- Kennslustjórafundir stoðdeilda eru á fimmtudögum kl 12.30.
- Fundir stjórnenda með skrifstofu og fjármáladeild: föstudaga kl. 14.15.
- Fundir stjórnenda með húsverði og ræstingastjóra: mánudaga kl. 15.30.
- Fundir stjórnenda: mánudaga kl. 8.30.
Gísli
