Vikupistill skólameistara (2010/4)
Fundir í vikunni
Umsjónarfundur verður haldinn miðvikudaginn 3. febrúar kl. 10.15.
Skólaráðsfundurverður haldinn miðvikudaginn 3. febrúar kl. 11.10.
Samstarfsnefndarfundur verður haldinn fimmtudaginn 4. febrúar kl. 9.05.
Skólafundur 5. febrúar
Föstudaginn 5. febrúar fellur kennsla niður eftir kl. 10.00 en þá hefst skólafundur um menntastefnu FÁ og nýjar námskrár.
Fundarstjóri: Ólafur H. Sigurjónsson
Fundartími: 10.15 – 15.00
kl 10.15-11.15 (10 mín kynningarerindi)
- Menntastefna skólans (Gísli Ragnarsson)
- Almenn námsbraut (Eiríkur Brynjólfsson)
- Sérnámsbrautir (Halldór G. Bjarnason)
- Heilbrigðisbrautir (kennslustjórar heilbrigðisbrauta)
- Stúdentsbrautir (kennslustjórar bóknámsbrauta)
kl. 11.20-12.20 og kl. 12.50-13.50
Allir hóparnir fjalla um menntastefnu skólans auk námskráa sinna brauta.
1. Hópur: Almenn námsbraut (EB)
2. Hópur: Sérnámsbrautir (HGB)
3. Hópur: Heilbrigðisbrautir (GHR)
4. Hópur: Stúdentsbrautir (HÓ)
kl. 14.00-15.00
Hópstjórar gera grein fyrir niðurstöðum hópsins.
Eftirfarandi drög að menntastefnu skólans eru lögð fram til umræðu í hópunum:
Menntastefna skólans – drög til skoðunar
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er opinber framhaldsskóli sem hefur starfað í þrjá áratugi. Í skólanum hafa skapast ýmsar hefðir sem ástæða er til að halda í heiðri, til dæmis að því er varðar vinsamleg og ánægjuleg samskipti nemenda og kennara. Það má m.a. rekja til þess að frá upphafi hefur nemendahópurinn komið víðs vegar að, verið á ýmsum aldri og búið yfir margbreytilegri reynslu. Þessari sérstöðu vill skólinn halda. Það er stefna skólans að beita heimilislegum aga sem byggist á gagnkvæmri virðingu starfsfólks og nemenda og stuðlar að heilbrigðum metnaði. Skólinn leitast við að skapa mannúðlegt og örvandi umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk. Í skólanum á að vera fjölbreytilegt framboð á námsefni og kappkostað að gera það aðlaðandi og aðgengilegt fyrir nemendur með margvíslegum kennsluaðferðum um leið og gerðar eru tilhlýðilegar kröfur.
Skólinn telur mikilvægt að á hverjum tíma sé fylgst með nýjungum í kennslu og menntamálum og að menn séu óhræddir við að taka upp þær nýjungar sem horfa til framfara. Starfsmenn leggja metnað sinn í að námsframboð sé á hverjum tíma í samræmi við kröfur samfélagsins. Námsframboð þarf því að vera fjölbreytt til þess að hver nemandi eigi raunverulega valkosti og notfæri sér þá í samræmi við áhugamál sín og hæfileika.
Nemendur eru hvattir til að tileinka sér góðar námsvenjur og sjálfsaga. Með því móti öðlast þeir sjálfstraust til þess að takast á við ný viðfangsefni hverju sinni og þeir bera ábyrgð á eigin námi. Skólinn leggur metnað sinn í að styðja vel við nemendur svo að þeir geti borið ábyrgð á eigin lífi, námi og starfi.
Skólinn mun áfram leitast við að sinna fjölskrúðugum hópi nemenda í samræmi við námskrá hverju sinni. En samskipti nemenda eru líka mikilvæg og þeir læra hver af öðrum. Skólinn vill stuðla að slíkum kynnum, m.a. með því að styðja við heilbrigt félagslíf.
Skóli er samfélag manna. Það er eitt aðalsmerki menntunar að menn njóta sín betur í lífi og starfi en ella. En jafnframt stuðlar menntun að því að fólk nýtur betur þeirra verðmæta sem umhverfið býður upp á. Skólinn vill stuðla að því að nemendur verði betur skyggnir á líf og listir í samfélagi sínu að námi loknu.
Í starfi sínu mun skólinn leitast við að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi, efla læsi þeirra í víðasta skilningi þess orðs, lýðræðisvitund, jafnréttishugsjón, menntun til sjálfbærni og sköpunaranda.
Skólinn býður upp á nám á almennri námsbraut, námsbrautum til stúdentsprófs, sérnámsbrautum og heilbrigðisbrautum, auk þess sem skólinn rekur öflugt fjarnám.
Almenn námsbraut
Almenn námsbraut Fjölbrautaskólans við Ármúla er fyrir þrjá hópa nemenda. Í fyrsta lagi fyrir þá sem ekki hafa ákveðið á hvaða námsbraut þeir vilja skrá sig. Í öðru lagi fyrir nemendur sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum sem krafist er á aðrar brautir skólans. Í þriðja lagi eru á almennri námsbraut nemendur með annað móðurmál en íslensku og ónógan undirbúning til að innritast á aðrar brautir. Nemendum á almennri námsbraut stendur til boða sérstakt nám í upprifjunaráföngum og stuðningur við annað nám. Markmiðið er þeir geti fært sig yfir á aðrar brautir skólans eða lokið námi með framhaldsskólaprófi.
Sérnámsbrautir
Námið á sérnámsbraut er einkum ætlað nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla og verið í sérdeild eða sérskóla. Nemendur eiga kost á allt að fjögurra ára framhaldsnámi við FÁ að loknu grunnskólanámi. Nemendur útskrifast með sama einingafjölda og nemendur af stúdentsbrautum skólans en námið sem liggur að baki hverri einingu hefur ólíkar áherslur.
Heilbrigðisbrautir
Skólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum og býður upp á nám á heilbrigðisritarabraut, heilsunudddarabraut, lyfjatæknabraut, læknaritarabraut, sjúkraliðabraut og tanntæknabraut. Einnig er stefnt að fagháskólanámi fyrir útskrifaða lyfjatækna og sjúkraliða. Nemendur sem hefja nám á bóknámsbrautum skólans geta fært sig yfir á heilbrigðisbrautir og öfugt. Heilbrigðisbrautir skólans eru í stöðugri þróun og þess gætt að námið sé ávallt í takt við það starf sem býður nemenda að námi loknu.
Stúdentsbrautir
Skólinn býður upp á hefðbundið nám til stúdentsprófs á félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta-og hagfræðibraut. Þetta nám er undirbúningur undir háskólanám í tilteknum greinum en auk þess hefur skólinn jafnan litið svo á að stúdentsprófið ætti að vera sem hagnýtast þeim sem ekki stefndu á hefðbundið háskólanám en hefðu hug á annars konar námi eða þátttöku í atvinnulífinu, strax að stúdentsprófi loknu.
Fjarnám
Fjarnám hófst í FÁ haustið 2002 og hefur því sífellt vaxið fiskur um hrygg. Síðustu tvö árin hafa nemendur í fjarnámi verið tvöfalt fleiri en nemendur dagskólans. Fjarkennsla er því orðin veigamikill þáttur í allri kennslu í skólanum. Stöðugt hefur verið unnið að því að bæta fjarkennsluna með því að nýta alla þá möguleika sem upplýsingatæknin býður upp á.
Áfangakerfið - námsval
Allt nám í skólanum er eftir áfangakerfi. Áfangakerfið gerir nemendum kleift að hafa áhrif á námshraða sinn, sumum hentar venjulegur námshraði, aðrir geta farið hraðar og enn öðrum er hægt að bjóða lengri kennslutíma í hægferðum og nýta nemendur sér í samráði við námsráðgjafa alla þessa kosti skólans. Áfangakerfi skólans gerir þeim nemendum sem ekki hafa markað sér ákveðna stefnu strax að grunnskóla loknum mögulegt að stunda nám í almennum greinum og ljúka námi með útskrift af almennri braut skólans. Þetta almenna nám nýtist fari nemendur í aðra skóla og nýtist sömuleiðis ef nemendur halda áfram námi í FÁ.
Umhverfi skólans
Skólinn er við Ármúla 12 og er vel staðsettur með tilliti til strætisvagnaþjónustu og annarrar þjónustu í tengslum við skólann. Skólinn er með leiguhúsnæði í Ármúla 10 og Ármúla 17 auk þess sem íþróttakennsla er í Framheimilinu í Safamýri. Árið 2008 var hafist handa við að byggja 3000 m2 nýbyggingu við skólann sem áætlað er að verði tilbúin árið 2011. Þá rúmast allt skólastarfið undir einu þaki. FÁ er grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á umhverfismál.
Starfslið
Starfslið skólans er vel menntað, stór kjarni hefur starfað saman um og yfir 20 ár, breytingar á mannahaldi eru eðlilega nokkrar en mestar í tengslum við nýjungar í skólastarfi. Skólinn leggur áherslu á að búa starfsmönnum sínum eins góð starfsskilyrði og kjör og mögulegt er.
Gísli
