Vikupistill skólameistara (2010/5)
Önnin hálfnuð
Tíminn líður hratt. Í lok þessarar viku er kennsluönnin hálfnuð. Á þeim tímamótum er rétt að fylgjast sérstaklega vel með nemendum. Því miður er það staðreynd að mætingar nemenda versna gjarnan um miðja vorönn og þá sérstaklega eftir Árdaga. Ég vil því biðja kennara að brýna fyrir nemendum að nú þurfi þeir að þreyja góuna. Góuþræll er 22. mars og þá eru aðeins fjórir dagar í páskafrí. Ef einhverjir nemendur taka ekki þessari áskorun og fara að mæta illa bið ég kennara að láta umsjónarkennara, námsráðgjafa eða okkur stjórnendur vita af því. Með samstilltu átaki getum við dregið úr brottfalli.
Árdagar
Árdagar hefjast miðvikudaginn 3. mars kl. 10.00 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu liði til íþróttahúss þar sem dagskrá verður fram undir hádegi. Kaffihús verður starfrækt í anddyri skólans í hádeginu og síðan verða ýmsar kynningar svo sem kynning nemenda með annað móðurmál en íslensku. Fimmtudaginn 4. mars er kennt til kl. 9.55 en síðan hefst forvarnardagskrá. Kaffihúsið er áfram í hádeginu og síðan verður kynning á leikriti nemenda og dagskrá sem NFFÁ skipuleggur. Dagskrá fimmtudagsins lýkur síðan með söngkeppni sem haldin verður á Broadway. Föstudaginn 5. mars verður kennt til kl. 9.55 en síðan er boðið upp á úrval fræðslu- og skemmtiferða.
Rýmingaræfing
Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 9:45 var haldin eldvarnar- eða rýmingaræfing. Allir voru komnir út eftir 5 mínútur og gekk æfingin mun betur en síðast. Öll kerfi virkuðu rétt.
Eftirfarandi atriði skal hafa í huga á eldvarnaræfingu:
1. Kennarar í Ármúla 17 og íþróttahúsi koma með nemendur að aðalinngangi skólahús.
2. Kennarar í Ármúla 10 viðvörunarbjöllur fara þar í gang á sama tíma.
a) allir í stofum 1, 2, 3, 4, 5 og 10 fara niður innanhússtiga
b) allir í stofum 6, 7 og 8 fara út um stiga utanhús.
3. Þegar bjöllur hljóma stöðugt skal rýma húsið fara stystu gönguleið út ef hún er fær. Skilja dót eftir í stofum!
4. Fara ákveðið út, en án æsings.
5. Kennarar fara síðastir út úr kennslustofum og læsa stofum.
6. Allir safnast saman á túnið aftan reykskýlis.
7. Þegar æfing er yfirstaðin opna kennarar stofur fyrir nemendur, þeir sækja gögn sín.
Fundir í vikunni
Fundur samstarfsnefndar föstudag 26. febrúar kl. 10.15.
Starfsmannafundur föstudaginn 26. febrúar kl. 13.15. Á dagskrá fundarins eru: Árdagar, stoðkennsla við skólann, nýjungar í fjarkennslu (dagskólakennslu) og önnur mál.
Gísli
