Skólinn
Vikupistill skólameistara (2010/6)
Árdagar
Árdagar hefjast miðvikudaginn 3. mars kl 10 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu lið í íþróttahús. Þar keppa m.a. nemendur og kennarar í „softball“. Fjöldi forvitnilegra og skemmtilegra atburða verður á döfinni miðvikudag og fimmtudag. Einn af hápunktum miðvikudagsins er söngkeppnin sem haldin verður á Broadway. Föstudaginn 5. mars verður boðið upp á fjölbreyttar fræðslu- og skemmtiferðir innan og utan Reykjavíkur. Dagskrá Árdaga er auglýst á heimasíðu skólans.
Fundur á steypunni
Nemendur áfangans BÍÓ213 efna til fundar í skólanum þriðjudaginn 2. mars. Yfirskrift fundarins er „Upp úr skotgröfunum - umræða um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar". Fundurinn verður haldinn í anddyri skólans og hefst stundvíslega kl. 12:00 og er áætlað að hann taki 40-50 mínútur. Á fundinn koma Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Páll Magnússon útvarpsstjóri, Ragnar Bragason leikstjóri og Hrönn Kristinsdóttir framleiðandi. Markmið fundarins er að stuðla að málefnalegri umræðu um framtíð kvikmyndagerðar hérlendis. Fundurinn verður tekinn upp, unninn og síðan sýndur fullkláraður á heimasíðu skólans. Fundarstjórar/þáttastjórnendur eru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi Þór Sigurðsson sem er nemandi í FÁ. Hópurinn er undir handleiðslu Þórs Elísar Pálssonar kennara í FÁ.
Fundur í nýja salnum
Nemendur og starfsmenn skólans mæta í ófullgerðan fjölnotasal skólans fimmtudaginn 4. mars kl. 9.30. Þar verður stutt athöfn með söng og fleiri uppákomum. Tilefni þessa fundar er einkum að gefa nemendum færi á að sjá framtíðaraðstöðu sína í nýja fjölnotasalnum sem tekinn verður í notkun í haust.
Opið hús
Grunnskólanemum og foreldrum þeirra er boðið í skólann fimmtudaginn 4. mars kl. 17.00. Þar munu kennslustjórar kynna námsframboð og stoðþjónustu. Einnig verður bókasafnið opið og starfsemi þess kynnt.
Umgengni
Ég bið starfsmenn að láta í sér heyra þegar þeir verða varir við að nemendur brjóti reglur skólans. Það þarf stöðugt að minna nemendur á gildi góðrar umgengni, eins og t.d. að fleygja umbúðum og matarleifum í ruslafötur. Reykingar eru bannaðar alls staðar nema í reykskýli og öll munntóbaksnotkun er bönnuð í skólanum.
Gísli

