Vikupistill skólameistara (2010/7)
Næstu vikur
Nú eru aðeins þrjár kennsluvikur í páskafrí. Þessi tími reynist nemendum oft erfiður og er námsleiði farinn að segja til sín. Eflaust eru einhverjir nemendur kvíðnir vegna slælegrar frammistöðu. Mætingar sumra nemenda hafa því miður verið slakar og nokkrir hafa helst úr lestinni. Ég tel mjög brýnt að við starfsmenn skólans reynum að örva nemendur til dáða með öllum ráðum.
Árdagar
Árdagar 2010 tókust mjög vel. Dagskrá Árdaganna var fjölbreytt og var boðið upp á margt fróðlegt og skemmtilegt. Söngkeppni skólans var haldin á Broadway miðvikudaginn 3. mars og sigraði Eyrún Eðvaldsdóttir. Eyrún söng svo daginn eftir fyrir allan skólann í nýja salnum við frábærar undirtektir. Ég óska Eyrúnu til hamingju með sigurinn.
Kennarar og nemendur í Árdaganefnd unnu gott starf við undirbúning og framkvæmd Árdaganna. Auk nefndarmanna lögðu margir aðrir mikið á sig til að gera þessa daga eftirminnilega. Ég vil þakka þeim öllum kærlega fyrir gott starf í þágu skólans.
Stutt skýrsla um skólastarfið árið 2009
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er áfangaskóli sem býður upp á nám til stúdentsprófs á öllum fjórum bóknámsbrautum aðalnámskrár og nám til starfsréttinda á sex brautum á heilbrigðissviði auk framhaldsnáms fyrir sjúkraliða. Almenn námsbraut er starfrækt við skólann og er veittur mikill stuðningur við nemendur sem þurfa sérstaka aðstoð. Í skólanum er stór deild fyrir nemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku og í skólanum eru tvær sérdeildir, önnur fyrir mikið fatlaða nemendur og hin fyrir nemendur sem eru meira sjálfbjarga. Fjölbrautaskólinn við Ármúla rekur öflugt fjarnám.
Nemendahópurinn í FÁ er mjög fjölbreyttur, nemendur eru frá fermingaraldri upp í sextugt og námsgeta þeirra á breiðu sviði. Það má segja að nemendur FÁ séu þverskurður af þjóðfélaginu. Nemendafjöldinn er mikill, um 900 nemendur í dagskóla og yfir 2000 í fjarnámi. Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 15. október 2009 stunduðu 3077 nemendur nám við FÁ sem er um 1% íslensku þjóðarinnar.
Nemendur
Á síðustu árum hefur nemendum fjölgað mikið. Fjöldi skráðra nemenda í FÁ, samkvæmt tölum Hagstofunnar, var þann 15. október þessi:
Ár Nemar alls Dagskóli Fjarnám
2001 879 846 33
2002 1679 850 829
2003 1771 906 865
2004 2114 1002 1112
2005 2261 984 1277
2006 2488 1059 1429
2007 2643 1031 1612
2008 2914 974 1940
2009 3077 970 2107
Fjöldi dagskólanema hefur haldist nokkuð stöðugur enda takmarkar húsnæði skólans svigrúmið til að fjölga nemendum dagskólans. Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur verið með flesta skráða nemendur íslenskra framhaldsskóla undanfarin 6 ár. Frá því að fjarnám hófst hefur þróunin verið á einn veg, aðsókn eykst stöðugt. Fjarnámskennarar verða hæfari með hverju ári eftir því sem reynsla safnast í sarpinn. Þetta er greinilega tímabær kennsluaðferð og ásókn í fjarnám í FÁ er gífurleg. Um 300 grunnskólanemar stunduðu fjarnám í FÁ á haustönn 2009. Gildi fjarnáms er tíundað í Hagtíðindum um skólamál þann 19. febrúar 2009, en þar segir á bls. 4:
„Með því að stunda fjarnám geta grunnskólanemendur valið sér framhaldsskólaáfanga, sem ekki eru kenndir í þeirra grunnskóla. Þannig fá grunnskólanemendur, sem standa vel í námi, tækifæri til að takast á við meira krefjandi námsefni og geta flýtt fyrir sér í framhaldsskólanámi. Einnig býður fjarnám upp á að eldri nemendur geta bætt við sig námi með vinnu, annaðhvort til að bæta hæfni sína á vinnumarkaði eða til að standast kröfur sem gerðar eru til nemenda til að fá inngöngu í nám á háskólastigi.“
Tölur yfir prófaða ársnemendur í FÁ fjárlagaárið 2009 eru þessar:
Dagskóli vor 2009 420
Dagskóli haust 2009 399
Fjarnám vor 2009 225
Fjarnám sumar 2009 94
Fjarnám haust 2009 215
Ársnemar alls 1353
Samkvæmt fjárlögum ársins 2009 fékk skólinn aðeins greitt fyrir 1145 ársnemendur en skilaði 1353. Skólinn fær aðeins 996 ársnema í ár en það stefnir í mun fleiri nemendur.
Brautskráðir nemendur árið 2009
Undanfarin ár hefur brautskráning Fjölbrautaskólans við Ármúla farið fram tvisvar á ári í Háskólabíó. Bíóið var upptekið laugardaginn 19. desember og var því brautskráð frá Digrneskirkju í Kópavogi sem var stærsta húsið sem við gátum fengið þann dag. Árið 2009 voru brautskráðir frá skólanum 257 nemendur, 148 nemendur voru brautskráðir fimmtudaginn 21. maí og 109 nemendur laugardaginn 19. desember. Brautskráðir voru 24 heilsunuddarar, 5 heilbrigðisritarar, 8 lyfjatæknar, 6 læknaritarar, 18 sjúkraliðar, 13 sjúkraliðar með framhaldsnám, 6 tanntæknar, 1 með verslunarpróf, 5 sérdeildarnemar og 171 stúdent.
Inntaka nemenda árið 2009
Umsóknir um skólavist í dagskóla FÁ fyrir vorönn 2009 voru 419 þar af voru 362 umsóknir samþykktar en 57 var hafnað. Allar umsóknir nemenda undir 18 ára aldri voru samþykktar. Umsóknir um skólavist í dagskóla FÁ fyrir haustönn 2009 voru 914 og voru 523 umsóknir samþykktar en 391 umsókn var hafnað. Það sést vel á þessum tölum að gríðarleg hreyfing er á nemendum skólans. Allt of margir nemendur hverfa frá námi tímabundið eða varanlega.
Fjármál 2009
Skólinn var rekinn með tekjuafgangi árin 2005, 2006 og 2007 og hafði því safnast upp nokkur varasjóður, sem var kominn í 132.568.089 kr í byrjun árs 2008. Árið 2008 reyndist okkur dýrt vegna nýbyggingarframkvæmda. Aukakostnaður vegna þess reyndist vera hátt í 30 milljónir. Þessi aukakostnaður skýrði hallann á rekstri skólans sem varð árið 2008. Fjárhagur ársins 2009 skiptist þannig:
Tekjur frá ríkinu 826.566.009
Sértekjur 120.521.988
Tekjur samtals 947.087.997
Rekstrargjöld samtals -978.630.673
Tap ársins 2009 -31.642.676
Flutt frá fyrra ári 108.329.731
Niðurfelling höfuðstóls -24.259.431
Fjárhagsstaða 1.jan. 2010 52.527.624
Við eigum ennþá varasjóð upp á 52.527.624 kr sem samkvæmt rekstraráætlun fyrir árið 2010 verður nýttur að fullu.
Erlent samstarf
Skólinn hefur lengi verið í umfangsmiklu erlendu samstarfi. Margir erlendir gestir koma í skólann á hverju ári og kennarar og nemendur skólans heimsækja erlenda skóla. Skólinn tekur þátt í verkefnum sem styrkt eru af Menntaáætlun Evrópusambandsins, úr Þróunarsjóði EFTA og af Menntaáætlun Nordplus.
Sérdeildir
Haustið 2003 tók skólinn við rekstri sérdeildar 3 sem þá var staðsett í Lyngási við Safamýrarskóla. Í sérdeild 3 eru 16 fjölfatlaðir einstaklingar sem þurfa mikla umönnun og aðstoð við sitt nám. Halldór Gísli Bjarnson er kennslustjóri sérdeilda og auk hans eru fjórir þroskaþjálfar, þrír sérkennarar og þrír stuðningsfulltrúar starfandi við sérdeild 3. Verið er að byggja góða aðstöðu fyrir sérdeild 3 í nýbyggingu skólans. Sérdeild 2 hefur verið starfandi við skólann um árabil og nú eru 11 nemendur á brautinni. Þrír kennarar starfa eingöngu við sérdeild 2. Brautin fékk til umráða stóra kennslustofu haustið 2008 en hafði áður verið í lítilli stofu.
Heilbrigðisskólinn – innleiðing nýrra laga
Námskrár heilbrigðisbrauta skólans hafa lítið breyst en töluverð vinna hefur verið lögð í að undirbúa nám á fagháskólastigi tveggja brauta heilbrigðisskólans. Þessar tvær námsleiðir eru framhaldsnám í geðhjúkrun fyrir sjúkraliða og framhaldsnám fyrir sérhæfða sjúkrahúslyfjatækna. Við erum einnig byrjuð að skrifa nýjar námsskrár allra heilbrigðisbrautanna sex. Því miður hefur aðsókn að heilbrigðisbrautum dregist saman á undanförnum árum. Við bindum vonir við að framhaldssnámið muni auka aðsókn að sjúkraliðabraut og lyfjatæknabraut.
Almenn námsbraut –stoðþjónusta-innleiðing nýrra laga
Nemendur á almennri námsbraut fá mikinn stuðning við nám sitt. Sérstakir fornámsáfangar eru kenndir í kjarnagreinum (193-áfangar) og nemendur fá stuðning, m.a. við heimanám. Sérstakur kennslustjóri hefur yfirumsjón með almennri námsbraut og voru um 150 nemendur á brautinni haustið 2009.
Nýbúadeildin efldist á árinu 2009 og í árslok voru um 100 nemendur með annað móðurmál en íslensku við nám í FÁ. Kennslustjóri í hálfu starfi hefur yfirumsjón með deildinni. Í þessum nemendahópi eru 14 flóttamenn frá Kólumbíu sem skólinn tók við haustið 2006 og haustið 2008. Sjö kennarar koma að sérstökum stuðningi við nýbúa. Nýbúum stendur til boða mjög fjölbreytt aðstoð.
Nemendur með dyslexíugreiningu eru um 130 talsins og er kennslustjóri í hálfu starfi sem heldur utan um þann hóp. Þessir nemendur fá mikinn stuðning sem er á ýmsu formi, aðstoð við heimanám, stoðkennsla, sérúræði í prófum, o.s.frv. Kennarar þessara nemenda taka mið af sérstökum þörfum þeirra.
Unnið er að undirbúningi nýrrar námsbrautar fyrir þann nemendahóp sem stundar nám á almennri braut sem byggir á nýjum lögum um framhaldsskóla.
Bóknám
Bóknámsbrautir skólans eru félagsfræðibraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Á bóknámsbrautum dagskólans voru árið 2009 um 550 nemendur og var um helmingur þeirra á félagsfræðibraut. Náttúrufræðibraut er næst stærst, síðan málabraut og loks viðskipta- og hagfræðibraut. Vorið 2007 voru ráðnir fjórir kennslustjórar til þriggja ára til að stýra sjálfsmati, umbótum og innra starfi á bóknámsbrautum. Kennslustjórar bóknáms eins og reyndar aðrir kennslustjórar stýra vinnuhópum sem koma að innleiðingu nýrra laga um framhaldsskóla. Unnið er að samningu námsskráa bóknámsbrauta.
Fundir starfsmanna
Skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri, fjarkennslustjóri, fjármálastjóri og þróunarstjóri funda vikulega á mánudagsmorgnum. Skólameistari, auk fleiri stjórnenda funda auk þess vikulega með kennslustjórum heilbrigðisgreina, kennslustjórum bóknámsbrauta, stjórnendum stoðdeilda, námsráðgjöfum, skrifstofu og fjármáladeild, umsjónarmanni fasteigna og ræstingarstjóra. Á miðvikudögum og föstudögum er fastur fundartími kennara og annarra starfsmanna í lok kennsludags. Fastur fundartími skólaráðs er hálfsmánaðarlega og skólanefnd fundar tvisvar á önn. Starfsmannafundir eru haldnir mánaðarlega.
Húsnæðismál
Húsnæði FÁ er um 4800 m2 og nemendafjöldi í dagskóla tæplega 1000. Það eru því einungis 5 m2 á hvern nemenda í aðalbyggingu skólans. Til þess að bjarga málum hefur skólinn tekið á leigu húsnæði í þremur húsum: Ármúla 10, Ármúla 17a og íþróttahúsi Fram.
Skólinn missti leiguhúsnæði sem hann hafði í Lyngási og þrjú útihús á skólalóðinni. Til þess að mæta því var tekin á leigu efri hæð Ármúla 10 sem er rúmir 500 m2. Um leið og nýbygging skólans hófst vorið 2008 missti skólinn meirihluta bílastæða og við neyddumst til að loka bílastæðunum með hliði. Þessar breytingar kostuðu mikla peninga og því miður fékk skólinn þær ekki bættar í uppgjöri um áramótin. Halli á fjárhagsreikningi skólans árið 2008 var því 24 milljónir en útlagður kostnaður vegna ofangreindra breytinga var hátt í 30 milljónir. Við erum ekki sátt við að bera þennan aukakostnað sem tengist sérstökum aðstæðum, þ.e. nýbyggingu við skólann og missi á húsnæði starfsbrautar.
Það er mikið fagnaðarefni að byggingarframkvæmdir við skólann hófust vorið 2008. Samkvæmt áætlun verður byggingin tilbúin vorið 2011.
Sjálfmat - umbótastarf
Skólinn er með sjálfsmatsáætlun og er hún aðgengileg á heimasíðu skólans: /fjolbrautaskolinn/namskra/sjalfsmatsaetlun/. Matið fer fram á ýmsan hátt, með kennslumati, starfsánægjumati, þjónustumati, í vinnu stýrihópa, skýrslum fagstjóra og kennslustjóra o.fl.
Tvær sjálfmatsskýrslur hafa verið gerðar, „Samantekt 2001-2002“ og „Samantekt 2004“, og eru þær aðgengilegar á sjálfmatssíðunni.
Kennslumat hefur verið framkvæmt frá 1999 og eru niðurstöður síðustu fimm kannanna aðgengilegar nemendum skólans og öðrum á heimasíðu skólans: /fjolbrautaskolinn/namskra/sjalfsmatsaetlun/kennslumat/.
Við kennslumatið er hugbúnaðurinn Splist notaður. Hýsing er utan skólans og uppfyllir hugbúnaðurinn allar kröfur um nafnaleynd. Vefþjónustur tengja hugbúnaðinn við staðarnet skólans (dagskólann) og kennsluumhverfið WebCT (fjarnám).
Kennarar fá ítarlegar niðurstöður kennslumats í greinum sínum, kennslustjórar fá niðurstöður kennslumats í þeim greinum sem tilheyra braut þeirra og yfirstjórn skólans fær yfirlit yfir niðurstöður í öllum greinum. Skýrsla með samantekt af niðurstöðum kennslumats er svo birt á heimasíðu skólans.
Starfsánægjumat hefur tvisvar verið framkvæmt, á haustönn 2006 og svo aftur á haustönn 2008. Var fenginn utanaðkomandi aðili, HRM - Rannsóknir og ráðgjöf, til að framkvæma matið. HRM - Rannsóknir og ráðgjöf hefur framkvæmt fjölda vinnustaðagreininga frá árinu 2004 með mælitæki Evrópsku starfsánægjuvísitölunnar.
Niðurstöður starfsánægjumats eru aðgengilegar á heimasíðu skólans: /fjolbrautaskolinn/namskra/sjalfsmatsaetlun/starfsanaegjumat/
Á haustönn 2006 var einnig framkvæmd viðamikil könnun fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX – viðskiptaráðgjafar IBM á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Þátttakan var frekar dræm enda starfsmenn nýbúnir að svara annarri könnun svipaðs efnis. Heildarniðurstöður eru á heimasíðu Menntamálaráðuneytis. Skólinn fékk samantekt með niðurstöðum könnunarinnar og voru þær í takt við niðurstöður starfsánægjumatsins.
Stýrihópur tók til starfa á vorönn 2008 með því markmiði að búa til könnun á þjónustu skólans, sem sameinaði mat á aðstöðu bókasafns, námsráðgjöf, tölvuaðstöðu, könnun á samskiptum nemenda við stjórnendur, námsráðgjafa, skrifstofu, fjármáladeild og þjónustu matsölunnar. Könnunin var lögð fyrir nemendur á haustönn 2008 og eru niðurstöður hennar aðgengilegar á heimasíðu skólans: /fjolbrautaskolinn/namskra/sjalfsmatsaetlun/thjonusta/.
Umhverfisstefna
Mikilvægt er að skólar landsins sinni umhverfismálum af alúð og einlægni. FÁ tekur það hlutverk sitt alvarlega og vill sýna nemendum og öðrum sem að skólastarfinu koma, gott fordæmi við rekstur og stjórnun skólans. Skólinn hefur umhverfissjónarmið og verndun náttúrunnar að leiðarljósi jafnt í daglegum athöfnum og í stefnumótun til framtíðar. Vinna innan skólans tekur tillit til sjálfbærrar þróunar þegar því verður við komið. Skólinn hefur verið með Grænfánann, sem Landvernd sér um á Íslandi, síðan haustið 2006. Heiða Björk Sturludóttir er umhverfisfulltrúi skólans.
Jafnréttisstefna
Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 kveður á um að öll fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 25 starfsmenn skuli setja sér jafnréttisáætlun. Fjölbrautaskólinn við Ármúla er stór stofnun, þar sem yfir 1000 manns eru saman komnir á hverjum degi, nemendur og starfsfólk. Það er því ljóst að málefni sem varða jafnrétti kynjanna hljóta að koma við sögu margsinnis á hverjum degi í slíkri stofnun. Jafnréttisstefna skólans er á birt á heimasíðu skólans en hún var samþykkt samhljóða á starfsmannafundi. Róbert Ö. Ferdinandsson er jafnréttisfulltrúi skólans.
Gísli
