Skólinn

Vikupistill skólameistara (2010/8)

1. Útskriftarnemar vorið 1989

Næstkomandi fimmtudag 18. mars kl. 17:00 ætla fyrrum nemendur, sem útskrifuðust vorið 1989, að minnast 2ja látinna félaga (Ásdísar og Kristínar). Þau gefa skólanum mynd eftir íslenskan listamann við stutta athöfn í skólanum, þar sem þau koma saman ásamt foreldrum Ásdísar og Kristínar. Á kennarastofu verður listi með nöfnum starfsmanna og eru þeir sem geta verið viðstaddir beðnir um að merkja við nöfn sín.

 

2. Pólskir gestir

Tveir kennarar og 18 nemendur frá Póllandi verða í heimsókn í FÁ í vikunni. Þau sækja einhverjar kennslustundir og borða hér tvisvar í hádeginu. Við bjóðum pólsku gestina velkomna. 

 

3. Úttekt á fjarnámi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að gera úttekt á fjarkennslu á framhaldsskólastigi. FÁ er einn þeirra skóla sem úttektin beinist einkum að, hinir eru VÍ og VMA. Markmið úttektarinnar er að meta hvort nám með fjarkennslusniði uppfylli kröfur gildandi laga, reglugerðar og aðalnámskrár og hvort í náminu séu gerðar sambærilegar kröfur og í reglubundnu námi í dagskólum framhaldsskóla. Með úttektinni skal veita upplýsingar um verklag og umgjörð fjarnáms, meta þörf fyrir fjarnám á framhaldsskólastigi m.t.t. ólíkra námshópa í fjarnámi. Ennfremur skal meta kostnað, skilvirkni og hagkvæmni fjarnáms og skoða starfsþróun kennara m.t.t. undirbúnings og þjálfunar í fjarkennslu.

Útektin hefst nú í mars og lýkur í maí 2010. Úttektaraðilar eru Sólveig Jakobsdóttir og Þuríður Jóhannesdóttir á vegum Símenntunar, rannsókna og ráðgjafar, stofnunar sem starfar innan Menntavísindasviðs HÍ. Úttektarskýrslan verður gerð opinber á vef ráðuneytisins.

 

4. Fundir í vikunni

Fundur verður í umhverfisnefnd mánudaginn 15. mars kl. 15.30. Rætt verður um umhverfisdag í apríl og endurnýjun grænfánans.

Fundur verður í skólaráði miðvikudaginn 17. mars kl. 11.10.

Fundur verður í samstarfsnefnd föstudaginn 19. mars kl. 10.15.

 

5. Bílastæðamál

Ég hef fengið kvartanir frá starfsmönnum fyrirtækja í Ármúla vegna bíla nemenda sem leggja ólöglega. Þeir hafa tjáð mér að bílarnir verði dregnir burtu án frekari viðvaranna. Ég bið því kennara að vara nemendur við og benda þeim á bílastæði í Laugardalnum.

 

Gísli

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica