Vikupistill skólameistara (2010/9)
Vorið
Jafndægur voru laugardaginn 20. mars og nú er dagurinn lengri en nóttin. Í dag er góuþræll og á morgun hefst einmánuður. Farfuglarnir eru farnir að flykkjast til landsins og boða komu vorsins. Enn einu sinni tókst okkur að þreyja þorrann og góuna. Veðurguðirnir hafa farið mjúkum höndum um okkur í vetur. Sennilega hefur þeim þótt nóg fyrir okkur að kljást við hann Icesave og aðra peningaþursa. Margir aðrir íbúar gömlu Evrópu hafa aftur á móti fengið að kenna á vetrarhörkum.
Nú fer að styttast í páskafrí og kennsludögum annarinnar fækkar óðum. Aðeins eru 19 kennsludagar eftir af vorönninni. Ekki þarf að fjölyrða um það hversu mikilvægt er að nýta vel þennan tíma. Við skulum hvetja nemendur til að taka námið föstum tökum.
Val fyrir haustönn
Nú hafa 54 nemendur skráð val í Innu. Ég bið umsjónarkennara að segja nemendum að aðeins þeir sem velja fyrir haustið eigi möguleika á áframhaldandi skólavist. Nemendur velja eins og þeir nái öllum áföngum en valið verður svo leiðrétt að prófum loknum ef með þarf. Síðustu forvöð til að skrá val er 16. apríl.
Kennslumat
Kennslustjórarnir hafa í samráði við fagstjóra ákveðið hvaða áfanga skuli meta á þessari önn og munu þeir fylgjast með framkvæmd matsins og aðstoða kennarana ef þess er þörf.
Kennslumatið hefst í dag og stendur til 29. apríl. Krækja í kennslumatið er í Mínum síðum og þurfa nemendur að skrá sig inn í fyrsta skiptið sem þeir opna það. Notandanafn og lykilorð er sama og í Mínum síðum.
Kennararnir eru beðnir að gera viðeigandi ráðstafanir til að framkvæma kennslumatið í kennslutíma, t.d. með því að panta fartölvuvagn eða tölvustofur.
Að loknu mati þarf nemandinn að smella á valkostinn Senda svör fyrir hvern áfanga fyrir sig. Þegar fleiri nemendur nota sömu tölvu mið matið þarf e.t.v. að endurræsa tölvuna.
Páskafrí
Árshátíð nemenda er haldin á Nasa fimmtudagskvöldið 25. mars og stendur skemmtunin til kl. 02.30. Frí er í skólanum föstudaginn 26. mars og í framhaldi af því hefst páskafrí sem stendur til 6. apríl. Ég óska starfsmönnum og nemendum í FÁ gleðilegra páska.
Gísli
