Skólinn

Vikupistill skólameistara (2010/11)

Síðustu kennsludagar vorannar

Nú eru einungis 8 kennsludagar eftir af önninni. Vorpróf hefjast föstudaginn 30. apríl og eru kennarar beðnir um að kynna sér vel yfirsetu- og prófareglur. Prófstjórar eru Guðríður og Hafdís Guðjónsdætur.

Um 500 nemendur hafa valið áfanga fyrir haustönn og því eru eflaust ennþá einhverjir sem eiga eftir að velja. Ég bið umsjónarkennara að ganga eftir að þeir geri það.

Kveðjuathöfn útskriftarnema

Kveðjuathöfn útskriftarnema verður föstudaginn 23. apríl. Kennsla fellur niður í 3. kennslustund og skerðist mögulega eitthvað í 2. kennslustund. Léttar veitingar verða á kennarastofu um kl. 10.30.

Starfsmannafundur 23. apríl

Starfsmannafundur verður haldinn föstudaginn 23. apríl kl. 13.15. Aðalefni fundarins verður spurningin: „Hvernig sjáum við FÁ eftir fimm ár?“. Eftir stuttan inngang verður fundarmönnum skipt í átta hópa sem dreifast í stofur á annarri og þriðju hæð miðálmu. Hópstarfið verður með svipuðum hætti og á þjóðfundi og menntaþingi. Ég sendi með vikupistlinum þrjú skjöl: glærur frá Sölva Sveinssyni sem hann kynnti fyrir okkur í haust, glærur frá ráðgjafarhópi sem Kris var í og sem fjallaði um stefnumótun fyrir FÁ og loks menntastefnu skólans eins og hún er í dag.

Umsjónarfundur verður á morgun þriðjudag 20. apríl kl. 11.10.

Leiksýning í FÁ

Í síðustu viku setti leikfélag FÁ upp sýninguna. „Einu sinni var“. Leikstjóri og höfundur er Brynja Valdís Gísladóttir en verkið var útskriftarverkefni hennar í Kvikmyndaskóla Íslands (sjá http://vimeo.com/4848601). Leikritið var frumsýnt miðvikudaginn 14. apríl og voru sýningargestir sammála um að sýningin hafi tekist vel. Ég óska leikendum og öðrum sem komu að verkinu til hamingju með glæsilega leiksýningu.

Sumardagurinn fyrsti

Sumarið hefst formlega fimmtudaginn 22. apríl og veturinn að baki. Að sjálfsögðu er frí í skólanum þennan dag svo allir geti fagnað sumri með fjölskyldu sinni. Ég vil þakka nemendum og starfsmönnum fyrir veturinn og óska öllum gleðilegs sumars.

 

Gísli

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica