Vikupistill skólameistara (2010/12)
1. Próf
Vorprófin hefjast föstudaginn 30. apríl og eru kennarar beðnir um að kynna sér vel yfirsetu- og prófareglur. Prófstjórar eru Guðríður og Hafdís Guðjónsdætur. Jón Þorgeir þarf að fá prófhandrit þremur virkum dögum áður en prófin eru haldin. Próf sem eiga að fara fram fyrsta prófdag, föstudaginn 30. apríl, þurfa að vera komin til Jóns fyrir hádegi á morgun 27. apríl.
2. Kennslukönnun
Minnt er á að fimmtudaginn 29. apríl er síðasti dagurinn til að svara kennslukönnun. Því miður hafa ekki nógu margir nemendur svarað könnuninni og því skora ég á þá að nýta sér þennan möguleika til að meta námsáfangana og ég bið ennfremur kennara að hvetja nemendur til þess.
3. Dimisjón
Útskriftarefni frá FÁ í vor komu saman föstudagsmorgunin 23. apríl og kvöddu skólann sinn. Stúdentsefni voru áberandi í rauðum nautabanafötum og slógu um sig með spænskum hrópum. Skólinn var fallega skreyttur í stíl við fatnaðinn og skapaðist sannkölluð spænsk stemning á Steypunni. Þorvarður Kristjánsson flutti ræðu í byrjun dagskrár. Síðan samkvæmt venju voru hinir ýmsu kennarar og starfsmenn kallaðir á svið og fengu þeir blóm, koss og borða frá hópnum. Í útskriftarmynd var m.a. gert góðlátlegt grín að raunum „eilífðarstúdents“ í skóla- og félagslífi FÁ (sjá /sjonvarp).
4. Fundur í samstarfnefnd
Fundur verður haldinn í samstarfsnefnd fimmtudaginn 29. apríl kl. 9.05.
5. Vorið er komið
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Vetur og sumar frusu saman sem þjóðtrúin segir að viti á gott. Í morgun birtist eftirfarandi frétt og mynd á mbl.is: „Fyrstu kríurnar sáust á laugardag við Ósland við Höfn á Hornafirði. Að sögn Brynjúlfs Brynjólfssonar fuglaáhugamanns er ekki vitað hve margir fuglar eru komnir en mest hafa um tíu sést saman á flugi. Aðspurður segir hann flug farfuglanna ekki truflast vegna öskunnar úr gosinu í Eyjafjallajökli sem hefur lamað flugsamgöngur í Evrópu undanfarið.“

Gísli
