Vikupistill skólameistara (2010/13)

1. Félagsmálafulltrúi

Umsóknarfrestur um stöðu félagsmálafulltrúa rann út föstudaginn 7. maí. Þrír starfsmenn skólans höfðu áhuga á þessu starfi, Klara Kristín, Kristen Mary og Rósa Björk. Kristen var ráðin í stöðuna og tekur hún við sem félagsmálafulltrúi þann 1. ágúst 2010. Ég vil þakka Klöru Kristínu og Rósu Björk fyrir að sýna þessu starfi áhuga.

2. Starfsmannafundur þriðjudaginn 18. maí kl. 09.00 – 11.00

Starfsmannafundur verður haldinn þriðjudaginn 18. maí kl. 09.00 – 11.00. Aðalefni fundarins er spurningin: „Hvernig sjáum við FÁ eftir fimm ár?“. Eftir stuttan inngang verður fundarmönnum skipt í átta hópa sem dreifast í stofur í Ármúla 10. Hópstarfið verður með svipuðum hætti og á menntaþingi.

A.    Stuttur inngangur.  Gísli og Ólafur.

B.    Skipt í hópa sem fara í stofur í Ármúla 10.

  1. Verkstjóri og ritari valinn í hverjum hópi.
  2. Þátttakendur fá 3-5 mínútur til að setja sínar hugmyndir á blað.
  3. Umræður þar sem hugmyndir þátttakenda eru ræddar og settar í forgangsröð. Áætlaður tími 20-30 mínútur.
  4. Kynning á hugmyndum. Talsmaður segir frá sameiginlegri niðurstöðu hópsins.  Áætlaður tími 20 mínútur.
  5. Upplýsingum allra hópa safnað saman.

C.    Fundargerð með niðurstöðum hópa send á alla starfsmenn.

 

3. Dagskrá vikunnar 17. – 21. maí.

 

17. maí  kl. 08.30  Sjúkrapróf  
  kl. 11.00 Sjúkrapróf  
  kl. 24.00 Einkunnainnfærslu lokið  
18. maí  kl. 09.00 Starfsmannafundur  
19. maí kl. 08.00 Einkunnir aðgengilegar í INNU
kl. 08.30 Endurtökupróf
kl. 11:00 - 14:00 Prófúrlausnir sýndar - frágangur á vali
kl. 17:00 Æfing fyrir útskrift í Háskólabíói
21. maí kl. 13.00 Brautskráning í Háskólabíói


 

Gísli

 



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica