Strætókort
Frá 20. ágúst geta nemendur gengið frá kaupum á námsmannakortum á heimasíðu Strætó bs. vegna skólaársins 2010-2011. Um tvö kort er að velja Vetrarkort sem kostar 15.000 kr og gildir frá afhendingardegi 2010 til 1. júní 2011 og Haustkort sem kostar 8.000 kr og gildir frá afhendingardegi 2010 til 1. janúar 2011.
Sótt er um lykilorð á heimasíðu Strætó bs. Lykilorðið er svo notað til að komast í næsta skref sem er innsetning myndar. Myndin þarf að vera meira en 60 kb og helst minna en 1 mb. Á skjánum á að sjást brotalína til að vinna myndina í rétt hlutföll. Þá fyrst er umsókninni lokið. Ef myndin er ekki nógu skýr og góð passamynd mun umsóknarferlið tefjast. Eingöngu er hægt að greiða með kreditkorti á netinu.
Ef námsmaður eða forráðamaður hans er ekki með heimabanka eða kreditkort þarf að ganga frá umsókninni á hjá starfsmanni Strætó á Hlemmi. Námsmaður eða forráðamaður hans þarf þá að koma með passamynd á minnislykli sem verður að vera í jpg formati, um 200 pixla og 60-1000 kb. Jafnframt þarf að koma með annað hvort kreditkort eða 8.000 kr.
Viðmiðunarreglur fyrir nemakort í strætó veturinn 2010 - 2011
Þú þarft að vera með lögheimili innan sveitarfélags sem tekur þátt i Nemakortunum (Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Álftanes).
Þú ert skráður nemandi í framhalds- eða háskóla sem staðsettur er á höfuðborgarsvæðinu.
Nemendur í fjarnámi og nemendur í grunnskóla, sem taka námskeið eða námsgrein(ar) í framhaldsskóla, eiga ekki kost á nemakorti.
