Vikupistill skólameistara (2010/14)

Ágætu nemendur og starfsmenn! Velkomin til starfa á nýju skólaári sem ég vona að verði gott fyrir alla sem nema og starfa í FÁ.

Nokkrar breytingar eru í starfsmannahópnum frá því á vorönn. Auður Þóra Björgúlfsdóttir, Þóra Hrólfsdóttir og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir hættu störfum í vor og þakka ég þeim góð störf við skólann. Dóra Ósk Halldórsdóttir, Kristrún Sigurðardóttir og Guðrún Stefánsdóttir verða í leyfi á haustönn en Ólafur Jónsson kemur aftur til starfa eftir námsleyfi.

Tveir nýir starfsmenn hefja störf nú í haust. Það eru þær Petra Björk Arnardóttir sem kennir tanntæknum og Guðný Lilliendahl sem kennir á lyfjatæknabraut. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa.

Dagskólanemendur á haustönn eru um 950, þar af eru nýnemar úr 10. bekk um 170. Við gerum ráð fyrir að nemendur í fjarnámi verði á bilinu fimmtán hundruð til tvö þúsund. Þetta eru fleiri nemendur en skólinn fær greitt fyrir. Í fjárlögum er miðað við 995 ársnemendur á þessu ári, 160 færri en í fyrra. Vorönnin skilaði 543 svo að 452 ársnemendur eru eftir á haustönn. Það er því fyrirsjáanlegt að við verðum með fleiri nemendur en fjárlög gera ráð fyrir á þessu ári. Það getur ekki gengið til lengdar og því verðum við líklega að fækka nemendum á næsta ári til að ná endum saman.

Í sumar hefur verið unnið að umbótum í gamla skólahúsinu, aðallega í miðálmu, og gekk það verk samkvæmt áætlun. Þriðja hæðin hefur tekið miklum stakkaskiptum og er sláandi að sjá muninn á annarri og þriðju hæð. Á næsta ári verður lokið við endurbætur í gamla húsinu og einnig verður gengið frá tengingum milli álma. Þá verður greið leið milli austur-, mið- og vesturálmu. Þessar breytingar verða tilbúnar haustið 2011.

Framkvæmdir við nýbygginguna stóðust ekki tímaáætlun og tafðist afhending skrifstofuálmu um þrjár vikur. Þetta hefur haft ýmis óþægindi í för með sér nú í skólabyrjun. Eldhús, matsalur og fyrirlestrarsalur eru ekki tilbúin til notkunar og verða það sennilega ekki fyrr en um miðja haustönn. Öll húsgögn í salina eru ókomin og einnig er eftir að ganga frá innréttingum í eldhús. Við stefnum að því að taka þessi rými í notkun um leið og þau eru tilbúin. Í vetur verður lokið við kennsluálmu nýbyggingar, suðurálmuna, og einnig verður hafist handa við að ljúka við breytingar á núverandi kennarastofu og aðliggjandi herbergjum þar sem bókasafn skólans verður til húsa.

Ég ætla að nefna nokkur verkefni sem verða ofarlega á baugi á komandi skólaári:

  • Nýbygging skólans er þar efst á lista og mun ég upplýsa um framgang hennar í vikupistlum. Ekkert bendir til annars en að áætlanir standist og byggingin verði tilbúin næsta haust fyrir 30 ára afmæli skólans þann 7. september 2011.
  • Nýjar námskrár og námsbrautir verða áfram til umræðu í vetur. Við leggjum áherslu á endurskoðun námskráa heilbrigðisbrauta og innsetningu þeirra í viðmiðaramma ráðuneytisins. Námskrá almennrar námsbrautar verður þróuð áfram í vetur og sama gildir um námskrár bóknámsbrauta og sérdeilda. Nú er ekki lengur skylda að vera komin með nýjar námskrár haustið 2011. Framhaldsskólalögunum var breytt í vor og frestur skólanna til að setja sér nýjar námsbrautalýsingar var framlengdur til 1. ágúst 2015. Það er því ekki nein lagaskylda að ljúka námskrárvinnunni í vetur eins og var í eldri lögum.
  • Áframhaldandi niðurskurður fjárveitinga er boðaður af ríkisstjórninni. Við fengum gríðarlegan niðurskurð á þessu ári sem fyrst og fremst var vegna fækkunar ársnema. Nú er boðaður flatur niðurskurður upp á 5% í framhaldsskólum. Við þurfum því að halda áfram að spara og finna leiðir til að lækka útgjöld. Ég vonast til að við getum í sameiningu fundið sparnaðarleiðir sem eru eins léttbærar fyrir nemendur og starfsmenn og nokkur kostur er.

Það hafa verið erfiðir tímar á Íslandi undanfarin misseri sem snerta skólana eins og allt þjóðlífið. Það er því miður líklegt að næstu tvö ár verði skólunum erfið fjárhagslega vegna niðurskurðar fjárveitinga. En öll él birtir upp um síðir. Það mun koma betri tíð með blóm í haga og þá getum við haldið áfram að efla skólastarfið. Þangað til verðum við að herða sultarólina og reyna að halda í horfinu.

Útivistardagur (busavígsla) verður þriðjudaginn 31. ágúst og hefst athöfnin kl. 9.55. Kennsla fellur því niður frá þeim tíma. Um kvöldið verður haldin skemmtun í skólanum en fyrsti dansleikur annarinnar frestast fram í september.

Nýnemar sem koma beint úr grunnskóla fara í haustferð dagana 2.–3. september. Lagt verður af stað kl. 8.30 fimmtudaginn 2. september og komið aftur síðdegis föstudaginn 3. september. Nokkrir kennarar fara með nemendum í ferðina og raskast kennsla þeirra eitthvað þessa daga. Viðbúið er að margir verði fjarverandi í nýnemahópum.

Töflubreytingar standa yfir í dag og á morgun og kennsla hefst miðvikudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá. Töluverðar hreyfingar verða í nemendahópum vegna töflubreytinga og hafa nemendur svigrúm til að skrá sig úr áföngum fram til 13. september. Skráðir dagskólanemar í Innu eru nú 952.

Innritun í fjarnám hefst 1. september og lýkur 7. september. Við gerum ráð fyrir að 1500 til 1800 nemendur verði í fjarnámi í FÁ á haustönn. Stefnt er að því að kennsla í fjarnámi hefjist mánudaginn 11. september.

Gísli

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica