Vikupistill skólameistara (2010/15)
Útivistardagur (busavígsla) verður á morgun, þriðjudaginn 31. ágúst. Athöfnin hefst um kl. 10 þegar nýnemar verða sóttir í kennslustofur. Kennarar eru beðnir um að læsa kennslustofum, nýnemar skilja þar eftir skólatöskurnar sínar. Nemendur verða látnir leysa ýmsar þrautir í anddyri skólans og fara síðan út á grasflötina austan megin við skólann, þar sem þeir taka þátt í ýmsum leikjum. Að lokinni vígslu er nýnemum boðið upp á veitingar. Kennsla fellur niður eftir kl. 10 þennan dag.
Nýnemar fara í haustferð dagana 2.–3. september. Ferðinni er heitið í félagsheimilið Goðaland í Fljótshlíð. Lagt verður af stað kl. 8.30 fimmtudaginn 2. september og komið aftur síðdegis föstudaginn 3. september. Nokkrir kennarar fara með nemendum í ferðina og raskast kennsla þeirra eitthvað þessa daga.
Innritun í fjarnám hefst 1. september og lýkur 7. september. Við gerum ráð fyrir að 1500 til 1800 nemendur stundi fjarnám í FÁ á haustönn. Kennsla í fjarnámi hefst mánudaginn 13. september.
Fundir starfsmanna á haustönn
- Fastur fundartími kennara (starfsmanna) er á mi. kl. 14.40 og fö. kl. 13.15. Þessir fundartímar eru ætlaðir fyrir hvers kyns fundi kennara og annarra starfsmanna.
- Starfsmannafundir á haustönn eru 23. ágúst, 24. september, 22. október og 26. nóvember.
- Skólaráðsfundir eru hálfsmánaðarlega á mi. kl. 14.35. Næsti fundur skólaráðs er 1. september.
- Skólanefndarfundir eru a.m.k. tveir á önn. Fundartímar óákveðnir.
- Kennslustjórafundir eru vikulega:
a) Kennslustjórar heilbrigðisbrauta á fi. kl. 11.10.
b) Kennslustjórar bóknámsbrauta á þri. kl. 10.15.
c) Kennslustjórar stoðdeilda,námsráðgjafa o.fl. á má. kl. 10.15
- Fundir stjórnenda eru alla má. kl. 9.00.
- Fundir með skrifstofu og fjármáladeild eru á fö. kl. 13.30.
- Fundir með húsverði og ræstingastjóra eru á mánudögum kl. 15.30.
Ábending frá nemendum
Kennarar eru eindregið hvattir til að skrá inn á mínar síður þegar kennsla fellur niður, t.d. vegna veikinda. Einhver brögð eru að því að það sé ekki gert og að nemendur mæti að óþörfu í tíma sem fellur niður.
Ábending frá foreldri
Foreldri fer fram á að kennarar og aðrir starfsmenn skólans hvetji nemendur til að koma með nesti í skólann. Því er hér með komið á framfæri.
Gísli
