Vikupistill skólameistara (2010/16)

Dagskólanemendur

Í dag eru 952 nemendur skráðir í dagskóla FÁ. 517 þeirra stunduðu nám á vorönn. 435 nemendur eru nýir eða endurinnritaðir, 300 nýir og 135 endurinnritaðir. Af nýjum nemendum koma 170 beint úr grunnskóla.

Dagskólanemendur skiptast þannig á brautir:

            Almenn braut              152      þar af   Almenn braut 1             22

            Félagsfræðibraut        243                  Heilbrigðisritarabraut    20

            Lyfjatæknabraut            50                  Læknaritarabraut            5*

            Málabraut                     72                  Náttúrufræðibraut       120

            Heilsunuddarabraut      65                  Sjúkraliðabraut           100

            Sérdeildir                      26                  Tanntæknabraut           28

            Viðbót til stúdentsprófs   7                  Viðsk.- og hagfr.braut   55

            Viðskiptabraut                 3                  Ótilgreind braut              4

            Engin braut                     2                  Samtals:                    952 nemendur

 

*Flestir nemendur læknaritarabrautar eru í fjarnámi.

 

Fjarnám

Innritun í fjarnám hófst 1. september. Í morgun voru 1180 nemendur búnir að skrá sig í fjarnámið. Innritun lýkur á miðnætti þann 7. september.

 

Þjófavarnir

Ég bið kennara að læsa kennslustofum, sérstaklega er það brýnt eftir síðustu kennslustund dagsins. Það hefur komið fyrir að stofur séu opnar frá því að kennslu lýkur og þar til ræstingafólk mætir á staðinn. Í nýju álmunni þarf að gæta þess að loka öllum gluggum í mannlausum herbergjum. Ég bið starfsmenn og nemendur að gæta vel að verðmætum, svo sem seðlaveskjum, tölvum og símum.

 

Bílastæði

Það hefur borið á því að menn aki í kjölfar bíls sem opnar hliðið. Þetta bíður hættunni heim því að hliðið getur lent á aftari bílnum með skemmdum, bæði á bílnum og hliðinu. Slíkt hefur gerst oftar en einu sinni. Opnið alltaf hliðið með eigin lykli.

 

Eigendur fyrirtækja í nágrenninu kvarta yfir því að nemendur leggi í bílastæðin þeirra. Þeir sem leggja bílum í einkastæði taka þá áhættu að bílarnir verði dregnir burtu.

 

Umgengni

Ég bið starfsmenn að láta í sér heyra þegar þeir verða varir við að nemendur brjóti reglur skólans. Það þarf stöðugt að minna nemendur á gildi góðrar umgengni, eins og t.d. að fleygja umbúðum og matarleifum í ruslafötur. Reykingar eru bannaðar alls staðar nema í reykskýli og munntóbaksnotkun er bönnuð í skólahúsnæðinu.

 

Umsjónarfundur

Fundur umsjónarkennara með umsjónarnemendum verður þriðjudaginn 7. september  kl. 09:05. Örstuttur undirbúningsfundur verður haldinn á kennarastofu kl. 09:00 sama morgun. Umsjónarkennarar eru beðnir um að ræða sérstaklega við nýnema sem eru að hefja skólagöngu í FÁ. Margir þeirra eru nokkuð ráðvilltir í nýjum skóla.

 

Gísli

 



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica