Vikupistill skólameistara (2010/18)

Húsnæði skólans

Á fundi byggingarnefndar þann 14. september var samþykkt eftirfarandi bókun:

„Varðandi opnun úr bókasafni niður í kjallara til að tengja geymslu við safnið er samdóma álit að ávinningurinn sé svo lítill að ekki borgi sig að taka gólfpláss hæðarinnar undir stiga og stigapall heldur að skipuleggja allan gólfflötinn m.t.t. þarfa bókasafnsins og sleppa tengingunni milli hæða. Jóhann endurvinni skipulagið í samráði við skólafólkið. Samþykkt að taka síðan upp samninga við verktaka um að ljúka bókasafnshlutanum fyrir áramót m.v. upphaf framkvæmda 1.október 2010. Samhliða þessu verði unnið við suðurálmu samkvæmt núverandi áætlun. Skólafólk taki saman yfirlit um búnað vegna bókasafnsins en ekki hefur verið reiknað með nýjum búnaði heldur sé um flutning núverandi aðstöðu að ræða.“

 

Samkvæmt þessu verðum við að rýma starfsmannaeldhús, mötuneyti, fataherbergi og salerni í næsta mánuði. Til þess að það sé hægt verður nýja mötuneytið og starfsmannaaðstaðan (kaffistofan) að vera komin í gagnið. Ég bið starfsmenn að hjálpa okkur við að móta þessa nýju aðstöðu. Matreiðslumaður verður ráðinn frá 1. október.

 

Samgönguvika

Samgönguvika er samevrópskt átak um bættar samgöngur í borgum. Hún stendur árlega frá 16. – 22. september og er ætlað að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur. Fleiri en 2000 borgir og bæir í Evrópu taka þátt í Samgönguviku árið 2010. Evrópsk Samgönguvika er gengur út á að virkja íbúa til þess að nota almennings samgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikan hvatning til yfirvalda um að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.

Miðvikudagurinn 22. september er „bíllaus dagur í Evrópu“. Þá verður lögð áhersla á að fólk skilji einkabílinn eftir heima þann daginn. Grænfánaskólinn FÁ hvetur nemendur og starfsfólk til að taka þátt í bíllausa deginum. Nánar er hægt að lesa um samgönguvikuna og skoða t.d. dagskrá vikunnar á eftirfarandi slóð: http://samgonguvika.is/dagskra/

 

Á döfinni í þessari viku

Kennaranemar koma í FÁ þriðjudaginn  21. september kl. 9.00.

Skólaráðsfundur verður miðvikudaginn 22. september kl. 14.40.

Starfsmannafundur verður haldinn föstudaginn 24. september kl. 13.15.

 

Gísli

 



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica