Vikupistill skólameistara (2010/13)

Haustönnin styttist

Ég vek athygli á því að nú eru aðeins fjórar kennsluvikur eftir af haustönninni. Ég bið kennara að örva nemendur til dáða. Ef vel er að verki staðið er ennþá hægt að vinna upp það sem úrskeiðis hefur farið.

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2011

Menntamálaráðuneytið hefur auglýst rafræna innritun í framhaldsskóla frá 1. til 26. nóvember 2010 á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar.

Skólinn fær aðeins leyfi fyrir 991 ársnemanda í fjárlögum næsta ár og verður því að takmarka innritun samkvæmt því. Ekki verður tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur rennur út þann 26. nóvember.

 

Félagslíf nemenda

Nemendur halda Peruvikuna hátíðlega 1. til 5. nóvember. Ýmislegt verður sér til gamans gert þessa daga.

Undirbúningur fyrir spurningakeppni framhaldsskólanna er í fullum gangi og ræðulið skólans er farið að búa sig undir Morfís-keppnina. Bára Grímsdóttir hefur verið ráðin kórstjóri og hélt kórinn sína fyrstu æfingu sl. miðvikudag.

 

Fundir á næstunni

  • Kennarafundur verður haldinn föstudaginn 5. nóvember í fyrirlestrarsal. Fulltrúi blindrabókasafnsins kynnir þá þjónustu sem safnið býður nemendum.
  • Umsjónartími verður þriðjudaginn 9. nóvember. Þar verður m.a. farið yfir val fyrir vorönn 2011 og hertar reglur um fjölda áfanga sem nemendur mega velja.

 

Gísli



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica