Vikupistill skólameistara (2010/15)
Dagur íslenskrar tungu
Þriðjudaginn 16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu og verður hann haldinn hátíðlegur hér í skólanum. Að þessu sinni ætla nemendur úr leikskólanum Múlaborg að heimsækja okkur og munu þau m.a. syngja með nýstofnuðum kór skólans. Dagskráin stendur yfir frá kl. 11.30 til 12.00 og eru kennarar beðnir að mæta með nemendur í sal skólans kl. 11.30. Kennsla í fjórðu stund fellur því niður frá kl. 11.30.
Val nemenda – umsókn um skólavist á vorönn
618 nemendur hafa valið fyrir vorönn 2011. Þeir nemendur sem ekki velja fyrir 20. nóvember eiga á hættu að missa skólavist. Umsóknarfrestur nýrra nemenda um skólavist á vorönn er til 26. nóvember og hafa þegar borist um 150 umsóknir.
Síðustu kennsludagar haustannar og lokapróf
Nú eru aðeins 10 kennsludagar eftir af önninni. Minnt er á þá reglu að síðustu kennsludagar skulu vera próflausir. Próf hefjast mánudaginn 29. nóvember og eru kennarar beðnir um að hvetja nemendur til þess að prenta út próftöfluna og merkja nákvæmlega við prófin sín. Einnig er mikilvægt að hvetja nemendur til þess að lesa prófareglur sem finna má undir tilkynningum á heimasíðu. Þar eru einnig góð ráð varðandi prófaundirbúning. Prófstjórar eru Guðríður og Hafdís Guðjónsdætur.
Dimisjón
Útskriftarhópur á haustönn 2010 býður alla starfsmenn velkomna til kveðjustundar föstudaginn 19. nóvember klukkan 10. Skólinn býður síðan útskriftarnemum og starfsmönnum upp á léttar veitingar í nýju kaffistofunni. Kennsla fellur niður í þriðju kennslustund kl. 10.15-11.05 föstudaginn 19. nóvember.
Fundir í vikunni
Starfsmannafundur verður haldinn föstudaginn 19. nóvember kl. 13.15. Guðrún Pétursdóttir félagsfræðingur flytur fyrirlestur um fjölmenningu. Að fyrirlestri loknum verður hópavinna. Fyrirlesturinn og hópavinnan tekur 3 klukkustundir og stendur því fundurinn til kl. 16:15.
Gísli
