Vikupistill skólameistara (2011/8)

Næstu vikur

Nú eru aðeins sex kennsluvikur fram að páskafríi. Þessi tími reynist nemendum oft erfiður og er námsleiði farinn að segja til sín. Eflaust eru einhverjir nemendur kvíðnir vegna slælegrar frammistöðu. Mætingar sumra nemenda hafa því miður verið slakar og nokkrir hafa helst úr lestinni. Ég tel mjög brýnt að við starfsmenn skólans reynum að örva nemendur til dáða með öllum ráðum.

Árdagar

Árdagar 2011 tókust mjög vel. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og var boðið upp á margt fróðlegt og skemmtilegt. Söngkeppni skólans var haldin í nýja sal skólans þriðjudaginn 1. mars. Fjölmargir hæfileikamiklir söngvarar stigu á svið og ræddi dómnefnd um að erfitt hefði verið að velja úr þessum góða hópi. Svo fór að Lilja Björk Jónsdóttir sigraði með lagið „Mad world“. Hún mun því fara sem fulltrúi FÁ í söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri. Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar Lilju Björk til hamingju með sigurinn og góðs gengis í stóru keppninni. Fimmtudagskvöldið 3. mars var síðan haldin tískusýning FÁ (sjá visir.is). http://www.visir.is/asgeir-kolbeins-og-arnar-gauti-a-fremsta-bekk/article/2011110309275 .

Starfsmenn og nemendur í Árdaganefnd unnu frábært starf við undirbúning og framkvæmd Árdaganna. Auk þeirra lögðu margir aðrir mikið á sig til að gera þessa daga eftirminnilega. Ég vil þakka þeim öllum kærlega fyrir gott starf í þágu skólans.

Opið hús 17. mars

Opið hús verður fimmtudaginn 17. mars kl. 17-19. Námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans verður kynnt. Öll aðstoð við skipulag og dagskrá opna hússins er vel þegin.

 

Fundir í vikunni

  • Fundur stjórnenda með fulltrúum menntamálaráðuneytisins var haldinn mánudaginn 7. mars kl. 9 – 11. Rætt var um skólasamning, fjármál o.fl.
  • Byggingarnefndarfundur var haldinn kl. 13 -14. Framkvæmdir eru nú komnar á fulla ferð og verktakinn hyggst ljúka verkinu í lok júlí.
  • Skólaráðsfundur verður miðvikudaginn 9. mars kl. 14.40.
  • Stjórnendur FÁ eiga fundi í vikunni með rektor HR á miðvikudag kl. 13, skólastjóra fótaaðgerðaskólans á fimmtudag kl. 9 og með fulltrúum Landspítala og formanni læknaritarafélagsins á fimmtudag kl. 13.
  • Skólafundur starfsmanna og fulltrúa nemenda verður haldinn föstudaginn 11. mars kl. 13.10-15.30. Kynnt verður verkefnið „heilsueflandi framhaldsskóli“ en FÁ mun hefja þátttöku í þessu verkefni næsta haust. Dagskrá fundarins verður auglýst nánar síðar.

 

Gísli

 

 



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica