Vikupistill skólameistara (2011/11)
1. Starfið eftir páska
Kennsla hefst aftur að loknu páskafríi miðvikudaginn 27. apríl og kennslu lýkur föstudaginn 29. apríl. Vorpróf í fjarnámi hefjast mánudaginn 2. maí en þriðjudaginn 3. maí í dagskóla. Kennarar eru beðnir um að kynna sér vel yfirsetu- og prófareglur. Jón Þorgeir þarf að fá prófhandrit þremur virkum dögum áður en próf eru haldin. Próf sem eiga að fara fram fyrsta prófdag, mánudaginn 2. maí, þurfa að vera komin til Jóns fyrir hádegi fimmtudaginn 28. apríl. Prófstjórar í dagskóla eru Guðríður og Hafdís en Steinunn og Rósa í fjarnámi. Nemendur geta skoðað prófúrlausnir sínar miðvikudaginn 18. maí og staðfesta þá jafnframt val haustannar. Brautskráning er laugardaginn 21. maí kl. 11 og æfing fyrir brautskráninguna er föstudaginn 20. maí kl. 15.
2. Kennslukönnun
Minnt er á að föstudaginn 29. apríl er síðasti dagur til að svara kennslukönnun. Því miður hafa ekki nógu margir nemendur svarað könnuninni og því skora ég á þá að nýta sér þennan möguleika til að meta námsáfangana og ég bið ennfremur kennara að hvetja nemendur til þess.
3. Jafnréttisdagur 27. apríl
Jafnréttisdagur FÁ verður miðvikudaginn 27. apríl. Það er orðið að árlegri hefð að „mæta í bleiku“ og taka til umræðu þau álitaefni í jafnréttismálum sem ber hæst. Formleg dagskrá er frá kl. 10 til 13.
4. Dimisjón
Kveðjuathöfn útskriftarnema verður föstudaginn 29. apríl. Kennsla fellur niður í 3. stund og skerðist mögulega eitthvað í 2. kennslustund.
5. Umhverfisfulltrúi og jafnréttisfulltrúi
Frá og með 1. ágúst 2011 eru lausar stöður umhverfisfulltrúa og jafnréttisfulltrúa við skólann. Áhugasamir gefi sig fram við skólameistara.
6. Vorboðinn er komin
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. „Þann 22. apríl birtist eftirfarandi frétt á ruv.is: „Krían er komin til landsins. Kristín Benediktsdóttir sá eina kríu snemma í morgun þegar hún var á morgungöngu í Óslandi við Höfn í Hornafirði. Enginn fugl í heiminum ferðast jafnlanga leið á milli varp- og vetrarstöðva og krían. Flugleiðin frá varpstöðvum á norðurhjaranum suður að ísbreiðunum við Suðurskautslandið getur verið rúmlega 35 þúsund km og þessa vegalengd fer fuglinn tvisvar á ári. Þær fljúga á 45-60 km hraða á klukkustund og dagleiðirnar eru um 300 km. Krían er því búin að vera þrjá til fjóra mánuði á leiðinni til landsins.“
Gisli
