Vikupistill skólameistara (2011/14)

Útivistardagur (busavígsla) verður á miðvikudaginn 31. ágúst. Athöfnin hefst um kl. 10 þegar nýnemar verða sóttir í kennslustofur. Kennarar eru beðnir um að læsa kennslustofum, nýnemar skilja þar eftir skólatöskurnar sínar. Nemendur verða látnir leysa ýmsar þrautir á grasflötinni austan megin við skólann. Að lokinni vígslu er nýnemum boðið upp á veitingar. Kennsla fellur niður eftir kl. 10 þennan dag.

Nýnemar, sem koma beint úr grunnskóla, fara í haustferð dagana 1.–2. september. Ferðinni er heitið í félagsheimilið Goðaland í Fljótshlíð. Lagt verður af stað kl. 8.30 fimmtudaginn 1. september og komið aftur síðdegis föstudaginn 2. september. Nokkrir kennarar fara í ferðina og raskast kennsla þeirra eitthvað þessa daga.

Innritun í fjarnám hefst á morgun 30. ágúst og lýkur 6. september. Við gerum ráð fyrir að 1500 til 1800 nemendur stundi fjarnám í FÁ á haustönn. Kennsla í fjarnámi hefst mánudaginn 12. september.

Fundir starfsmanna á haustönn

  1. Fastur fundartími kennara (starfsmanna) í stokkatöflu er á mi. kl. 14.40 og fö. kl. 13.15. Þessir fundartímar eru ætlaðir fyrir hvers kyns fundi kennara og annarra starfsmanna.
  2. Skólaráðsfundir eru hálfsmánaðarlega á mi. kl. 14.40. Næsti fundur skólaráðs er mi. 7. september.
  3. Skólanefndarfundir eru a.m.k. tveir á önn. Fundartímar ekki fastsettir.
  4. Kennslustjórafundir eru vikulega:

a)    Kennslustjórar heilbrigðisbrauta funda á mi. kl. 13.45.

b)    Kennslustjórar bóknámsbrauta funda á mi. kl. 9.00.

c)     Kennslustjórar stoðdeilda,námsráðgjafar o.fl. funda á fi. kl. 10.15

  1. Fundir með starfsfólki þjónustudeilda eru á fö. kl. 13.30.
  2. Fundir með húsverði og ræstingastjóra eru á má. kl. 15.30.
  3. Fundir stjórnenda eru alla má. kl. 9.00.

 

Ábending frá nemendum

Kennarar eru eindregið hvattir til að skrá inn á mínar síður þegar kennsla fellur niður, t.d. vegna veikinda. Einhver brögð eru að því að það sé ekki gert og að nemendur mæti að óþörfu í tíma sem fellur niður.

 

Meðfylgjandi eru nánari upplýsingar um fasta fundi á haustönn 2011

Fastir fundir á haustönn 2011

 

  1. Skólaráðsfundir eru hálfsmánaðarlega á miðvikudögum kl. 14.40. Fyrsti fundur var þó haldinn föstudaginn 26. ágúst en næsti fundur verður miðvikudaginn 7. september kl. 14.40. Fundi skólaráðs sitja skólameistari, aðstoðarskólameistari, félagsmálafulltrúi, forvarnarfulltrúi, fulltrúar starfsmanna (Eiríkur Brynjólfsson og Steinunn Geirsdóttir) og tveir fulltrúar NFFÁ (Daði Vigfússon og Natan Kolbeinsson).
  2. Skólanefndarfundir eru tveir á haustönn. Fundi skólanefndar sitja Sigríður Ragna Sigurðardóttir formaður skólanefndar, skólanefndarmennirnir Andrés Andrésson, Ásgeir Beinteinsson, Gunnar Hrafnsson og Marta Guðjónsdóttir. Skólameistari, aðstoðarskólameistari, Úlfar Arnarson fulltrúi starfsmanna og Daði Vigfússon fulltrúi nemenda. Fundartími er ekki ákveðinn.
  3. Fundir stjórnenda með kennslustjórum Heilbrigðisskólans eru á miðvikudögum kl. 13.45. Fyrsti fundur verður miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.45. Fundinn sitja Bryndís Þórsdóttir, Finnbogi Gunnlausson, Guðrún Ragnarsdóttir, Guðrún Narfadóttir, Hrönn Baldursdóttir námsráðgjafi, skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri, fjarnámsstjóri og þróunarstjóri.
  4. Fundir stjórnenda með kennslustjórum bóknámsbrauta eru á miðvikudögum kl. 9.00. Fyrsti fundur verður miðvikudaginn 31 ágúst kl. 9.00. Fundinn sitja Hannes Ólafsson, Jóna Guðmundsdóttir, Petra Bragadóttir, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Jóhanna Rúnarsdóttir námsráðgjafi, skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri, fjarnámsstjóri og þróunarstjóri.
  5. Fundir stjórnenda með námsráðgjöfum, kennslustjórum stoðdeilda og sérdeildar eru á fimmtudögum kl. 10.15. Fyrsti fundur verður fimmtudaginn 1. september kl. 10.15. Fundinn sitja Ásta Sveinbjörnsdóttir, Eiríkur Brynjólfsson, Elín Vilhelmsdóttir, Halldór Bjarnason, Hrönn Baldursdóttir, Jóhanna Rúnarsdóttir, skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri og þróunarstjóri.
  6. Fundir stjórnenda með þjónustudeildum eru á föstudögum kl. 13.30. Fyrsti fundur verður föstudaginn 2. september kl. 13.30. Fundinn sitja Aðalheiður Þorbergsdóttir, Árni Ómarsson, Fjóla Björgvinsdóttir, Guðbjörg Eiríksdóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir, Kristín Björgvinsdóttir, Rósa Björk Gunnarsdóttir, skólameistari, aðstoðarskólameistari, fjármálastjóri, áfangastjóri, þróunarstjóri og fjarnámsstjóri.
  7. Fundir stjórnenda með húsverði og ræstingastjóra eru á mánudögum kl.15.30. Fyrsti fundur verður mánudaginn 5. september kl. 15.30. Fundinn sitja Jóhanna Berta Kristinsdóttir, Vigfús Þór Jónsson, skólameistari, aðstoðarskólameistari og þróunarstjóri.
  8. Fundir stjórnenda eru alla mánudaga kl. 9.00. Fundinn sitja skólameistari, aðstoðarskólameistari, áfangastjóri, fjarnámsstjóri, fjármálastjóri, og þróunarstjóri.

 

Þeir sem vilja koma erindum á dagskrá funda eru beðnir að hafa samband við skólameistara.

 

Gísli 



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica