Skólinn

Vikupistill skólameistara (2012/3)

Fjarnám

Rúmlega 1400 nemendur hafa greitt námsgjöld í fjarnámi á vorönn 2012. Fjarnámsstjóri gerir ráð fyrir að fjarnámsnemar verði um 1460 þegar öll kurl eru komin til grafar.

Haustið 2009 fyrirskipaði menntamálaráðuneytið okkur að fækka fjarnámsnemum. Í bréfi ráðuneytisins var tekið sérstaklega fram að frá 1. janúar 2010 yrði ekki lengur greitt fyrir grunnskólanema. Við urðum að hlýða þessum skipunum og fækkaði fjarnemum mikið á árunum 2010 og 2011. Grunnskólanemar fengu ekki lengur ókeypis fjarnám, við drógum úr auglýsingum og hækkuðum námsgjöld.

Nú er tímabært að undirbúa sóknaráætlun fyrir fjarnám skólans. Alþingi ályktaði síðastliðið vor um að grunnskólanemar skuli eiga kost á að stunda framhaldsskólanám frá og með hausti 2012. Ef ráðuneytið ákveður í ljósi þessarar ályktunar að hefja aftur greiðslu fyrir grunnskólanema í fjarnámi munum við endurnýja samstarf okkar við fjölda grunnskólana.

Hagstofutölur

Hagstofa Ísland birti sl. föstudag nýjar tölur um nemendur í framhaldsskólum landsins. Tölurnar miða við 15. október ár hvert. FÁ er með næstflesta nemendur íslenskra framhaldsskóla þar sem Tækniskólinn fer fram úr okkur í fyrsta sinn í 7 ár. Tafla hér að neðan sýnir fjölda nemenda í nokkrum framhaldsskólum síðustu 10 árin. Í töflunni eru aðeins sýndir stærstu skólarnir.

Tölur Hagstofunnar um fjölda nemenda í nokkrum framhaldsskólum 15. október ár hvert

                 
  2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Framhaldsskólastig: Samtals 21764 23120 24220 25093 26958 28340 29271 29698 27351 29.389
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 1679 1771 2114 2261 2488 2643 2914 3077 2624 2.585
Tækniskólinn 1975 2232 2074 2113 2209 2349 2651 3015 2506 2.647
Verkmenntaskólinn á Akureyri 1667 1762 1812 1864 1973 2055 2066 1806 1695 1.756
Verslunarskóli Íslands 1051 1072 1126 1392 1874 1997 2048 2111 1523 1.758
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 2028 2063 1975 2059 2071 1980 2122 2155 1885 2.189
Borgarholtsskóli 1040 1185 1232 1351 1421 1511 1511 1431 1435 1.522
Menntaskólinn í Kópavogi 1128 1244 1324 1352 1486 1436 1563 1491 1286 1.323
Menntaskólinn við Hamrahlíð 1428 1428 1526 1452 1438 1406 1397 1502 1514 1.414
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 962 1092 1010 1199 1240 1298 1330 1309 1183 1.257
Fjölbrautaskóli Suðurlands 816 858 940 948 988 1044 1042 1040 988 1.010

Fundir í vikunni

Fundur umhverfisnefndar verður haldinn þriðjudaginn 31. janúar kl. 15.30-16.30. Þrjár vikur eru síðan nýja úrgangsflokkunarkerfið var tekið í gagnið og umhverfisnefndin mun ræða hvernig til hefur tekist. Bryndís Valsdóttir umhverfisfulltrúi biður þá sem hafa tillögur varðandi flokkunar- og umgengnismálin að koma þeim til sín fyrir kl. 15 á morgun.

Skólaráðsfundur verður haldinn miðvikudaginn 1. febrúar kl. 14.35.

Kennarafundur verður haldinn föstudaginn 3. febrúar kl. 13.15. Á fundinum verður fjallað um fjarkennslukerfið „Moodle“ sem mun leysa Blackboard/WebCT af hólmi. Við stefnum að því að nota Moodle á næstu sumarönn.

Gísli


Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica