Skólinn

Skólasókn og einkunnir


1. Heildarmæting

Nemendur skulu mæta stundvíslega í allar kennslustundir.

Fjarvistastig og skráning
Ef nemandi mætir seint í tíma er skráð S í viðveruskráningu, mæti hann meira en 10 mínútum of seint eða mæti ekki er skráð F. Kennarar ská viðveru samdægurs.

Vottorð og leyfi
Til að fá fjarvist niðurfellda þarf að skila inn læknisvottorði eða staðfestingu frá forráðamanni sé nemandi undir 18 ára aldri. Skila þarf vottorði/staðfestingu á skrifstofu skólans innan fimm daga frá lokum veikinda. Ef nemandi er veikur í viku eða lengur þarf hann að láta skrifstofuna vita og skila síðan vottorði/staðfestingu að loknum veikindum. Nemendur geta fengið leyfi skólans frá því að sækja kennslu t.d. vegna námsferðar, þátttöku í landsleikjum á vegum ÍSÍ, félagsstarfa eða annarra ástæða sem skólaráð metur gildar.

Mætingareinkunn
Einkunn fyrir skólasókn er tengd viðveru í samræmi við töflu hér að neðan. Nemandi sem er með yfir 95% raunmætingu fær 10 í skólaeinkunn og eina einingu. Nemandi sem er með 95-92% heildarmætingu fær 9 í skólaeinkunn. Nemandi sem er með minna en 80% heildarmætingu hefur fyrirgert rétti sínum til áframhaldandi náms. Sækja má um undanþágu til skólaráðs.
Undanþágur
Nemendur geta sótt um ívilnun frá skólasóknarreglum ef þeir eru með börn á sínu framfæri eða ef um langtímaveikindi er að ræða.

2. Mæting í einstaka áfanga

Mætingaskylda er 80% í öllum áföngum nema ef annað er tekið fram. Mætingaskyldan getur verið meiri, t.d. í verklegum greinum og próflausum áföngum, og er það tekið fram í kennsluáætlun viðkomandi áfanga.
Benda má á að nemendur sem geta ekki sótt dagskólann hafa þann kost að sækja um fjarnám við skólann.

viðvera %

einkunn

100-96

10

95-92

9

91-89

8

88-86

7

85-83

6

82-80

5

79-60

4

59-40

3

39-20

2

19-1

1

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica