Samgöngustefna
Vegna aukins umferðarþunga í borginni, aukins svifryks, og alþjóðlegs átaks til að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda hvetur FÁ nemendur jafnt sem starfsmenn til að nota annan ferðamáta en einkabílinn til að sækja vinnu eða skóla. Þannig stígur skólinn enn eitt skref í þá átt sem hófst með inngöngu skólans í Grænfánaverkefnið haustið 2005. Í ljósi þess og að skólinn er heilbrigðisskóli, er eðlilegt að hann sýni gott fordæmi í að breyta ferðavenjum og reyni að stemma stigu við vaxandi mengun sem er orðin að alvarlegasta heilbrigðisvandamálinu í dag.
Enn fremur fylgir því kostnaður fyrir skólann að bjóða uppá og halda við bílastæðum fyrir einkabílinn og er eðlilegt að hvatningarkerfi sé komið á laggirnar til að minnka bílastæðaþörf skólans.
(Síðast uppfært 22.8.2010)
