Skólinn

Starfsánægjumat

Starfsánægjumat var fyrst framkvæmt á haustönn 2006. Utanaðkomandi aðili, HRM - Rannsóknir og ráðgjöf, var fenginn til að framkvæma matið. HRM - Rannsóknir og ráðgjöf hefur framkvæmt fjölda vinnustaðagreininga frá árinu 2004 með mælitæki evrópsku starfsánægjuvísitölunnar.

Smelltu á krækjuna til að sjá niðurstöðu matsins: Starfsánægjumat 2006.

Niðurstöður starfsánægjumats leiddu til nokkurra breytinga, m.a. var gert kynningarátak til að bæta ímynd skólans.

Á haustönn 2006 var einnig framkvæmd viðamikil könnun fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX – viðskiptaráðgjafar IBM á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Þátttakan var frekar dræm enda starfsmenn nýbúnir að svara annarri könnun svipaðs efnis. Heildarniðurstöður eru á heimasíðu menntamálaráðuneytis. Skólinn fékk samantekt á niðurstöðum könnunarinnar og voru þær í takt við niðurstöður starfsánægjumatsins.

Starfsánægjumat var framkvæmt í annað sinn á haustönn 2008 og fór könnunin fram 20.-24. nóvember 2008. HRM var aftur fengið til að framkvæma matið og að vinna úr niðurstöðum þess. Niðurstöðurnar liggja nú fyrir og eru aðgengilegar hér að neðan. Í niðurstöðunum kemur fram samanburður við niðurstöður mats í ððrum framhaldsskólum frá haustönn 2006.

Smelltu á krækjuna til að sjá niðurstöður starfsánægjumatsins frá haustönn 2008: Starfsánægjumat 2008

Á vorönn 2011 stóð fjármálaráðuneytið fyrir umfangsmikilli könnun "Stofnun ársins". Í úrtakinu voru allir starfsmenn í rúmlega 200 ríkisstofnunum. 59 af 103 starfsmönnum skólans tóku þátt í könnunni eða 57,3%. Smelltu á krækjuna til að sjá niðurstöður fyrir skólann og samanburð við heildarniðurstöðurnar: Stofnun ársins 2011



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica