Þjónustumat
Á vorönn 1999 var könnun á aðstöðu bókasafns lögð fyrir nemendur og á haustönn 2000 fór fram mat á námsráðgjöf.
Á vorönn 2001 var könnun um upplýsingatækni lögð fyrir nemendur og m.a. spurt um tölvuaðstöðu skólans.
Stýrihópur tók til starfa á vorönn 2008 með það að markmiði að búa til könnun á þjónustu við nemendur skólans, sem sameinaði mat á aðstöðu bókasafns, tölvuaðstöðu, könnun á samskiptum nemenda við stjórnendur, námsráðgjafa, skrifstofu, fjármáladeild og þjónustu sjóppunnar.
Könnunin var framkvæmd 17.-30. nóvember 2008. Til að hvetja nemendur til þátttöku voru 3 nöfn dregin af handahofi úr hópi þeirra sem svöruðu könnuninni og fengu þeir heppnu skólavist á vorönn sér að kostnaðarlausu.
Smelltu á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá niðurstöður þjónustumats:
