Skólanefnd
"Ráðherra skipar skólanefnd við framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Í skólanefnd skulu sitja fimm einstaklingar. Tveir eru skipaðir samkvæmt tilnefningum sveitarstjórna og þrír án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Nefndin kýs sér formann til eins árs í senn. Áheyrnarfulltrúar eru þrír með málfrelsi og tillögurétt, einn tilnefndur af kennarafundi, einn af nemendafélagi skólans og einn af foreldraráði, til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Hlutverk skólanefndar er að:
- marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestri þjónustu við íbúa á starfssvæði skólans og tengslum hans við atvinnu-, félags- og menningarlíf,
- vera skólameistara til samráðs um námsframboð skóla,
- staðfesta skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar og fylgjast með framkvæmd hennar,
- veita skólameistara umsögn um árlega starfs- og fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgjast með framkvæmd hennar,
- vera skólameistara til samráðs um fjárhæð þeirra gjalda sem skólameistari ákveður skv. 45. gr.,
- vera skólameistara til samráðs um samninga sem viðkomandi skóli gerir,
- vera skólameistara til samráðs um starfsmannamál,
- veita ráðherra umsögn um umsækjendur um stöðu skólameistara." (5. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008)
Skólaárið 2010/2011 eru í skólanefnd:
- Sigríður Ragna Sigurðardóttir, formaður
- Andrés Andrésson
- Ásgeir Beinteinsson
- Gunnar Hrafnsson
- Marta Guðjónsdóttir
- Margrét Gestsdóttir, fulltrúi starfsmanna
- Daði Kristján Vigfússon, fulltrúi nemenda
- Steinar Harðarson, fulltrúi foreldra
Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðarskólameistari og Gísli Ragnarsson skólameistari sitja fundi nefndarinnar. Aðstoðarskólameistari ritar fundargerðir.
Nefndin fundar að jafnaði tvisvar á önn og eru fundargerðir birtar á heimasíðu skólans.
