Fyrsti fundur starfshóps um endurskoðun umsjónarkerfis var haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl. 14.35 í fundarherbergi.
Mættir: Helmut, Eiríkur, Halldór Leifsson, Kristrún, Jóhanna, Hannes.
Samþykkt að fundarmenn skiptist á að skrifa fundargerð.
Samþykkt að Eiríkur Brynjólfsson taki að sér hópstjórn starfshópsins eftir þennan fund.
Stefnt er að því að hittast á tveggja vikna fresti.
Rætt var um umsjónartímana þar sem kennarar hitta alla umsjónarnemendur sína. Nýnemum virðist helst gagnast þessir fundir og almenn samstaða var um að ekki sé ráðlegt að sama efni sé fyrir alla nemendur á fundunum.
Afla þarf upplýsinga um umsjónarkerfi annarra sambærilegra skóla. Helmut ætlar m.a. að leita til MK, til VMA og til útlanda, Halldór til FG, Eiríkur til FB, Jóhanna til BHS og VÍ, Sveinbjörg til Tækniskólans.
Taka þarf saman upplýsingar um hvernig umsjónarkerfið hér virkar í raun. Í heilbrigðisskólanum eru náin tengsl milli nemenda og umsjónarkennara enda kenna umsjónarkennarar yfirleitt sínum umsjónarnemendum. Sérstakt umsjónarkerfi er fyrir starfsnámsbrautir. Helsta vandamálið er líklega á bóknámsbrautum en þar má líka finna marga jákvæða þætti. Vænlegt getur verið að stofna sérstök teymi um hvernig haga skal starfinu á þessum brautum, jafnvel þannig að hver braut skipi teymi sem skipuleggi umsjón með nemendum sérhverrar brautar. Helmut mun taka saman þau viðmið sem gilda um umsjón hér í skóla en síðan þarf að huga að því hvernig þessum viðmiðum er fylgt.
Fundarmenn sammála um að æskilegt væri að aðeins kennarar sem hafi áhuga á umsjón taki að sér umsjón (en fyrir það þarf þá að greiða). Hér þarf að huga að því að umsjónarkennarar sem eru með nemendur undir 18 ára þurfa að eiga samskipti við foreldra.
Næsti fundur ákveðinn föstudaginn 25. nóv. kl. 13:15.
Fundi slitið kl. 15:20
