Réttur til endurmenntunar
Réttur sjúkraliða
Sjúkraliðafélag er aðili að Starfsmenntasjóði starfsmanna ríkisins ásamt nokkrum öðrum aðildarfélögum BSRB. Til þess að njóta stykjra úr sjóðnum þarf að hafa verið greitt fyrir umsækjanda til sjóðsins í eitt ár. Hámarkssstyrkfjárhæð er nú 60.000 kr. Hafi umsækjandi fullnýtt þá upphæð er hann tvö ár að endurnýja rétt sinn til styrkja úr sjóðnum. Stundum greiðir einnig vinnuveitandi fyrir námskeið sjúkraliða. Í þeim tilvikum þarf að senda staðfestingu frá vinnuveitenda þegar skráð er á námskeið. Sjá nánar á heimasíðu félagsins http://www.slfi.is.
Réttur hjúkrunarfræðinga
Réttur lyfjatækna
Lyfjatæknar eru annað hvort í SFR eða VR eftir því hvar þeir starfa og fer því réttur þeirra eftir því í hvoru félaginu þeir eru. Félagsmenn í VR geta sótt um fræðslustyrk úr starfsmenntasjóðum sem stofnaðir voru í tenglum við gerð kjarasamninga 2000. Fræðslustyrkirnir nema allt að helmingi námskeiðsgjalda, að hámarki kr. 60 þúsund á ári. Upphæðin fer eftir stigaeign en eitt stig er gefið fyrir hvern mánuð sem greitt er iðgjald í sjóðinn. Hægt er að sækja um styrk beint á netinu. Umsóknareyðublað liggur einnig frammi á skrifstofu VR. Fyrirspurnum skal beint til styrkir@vr.is . Nánari upplýsingar er að finna á heimasíður VR, www.vr.is/index.aspx?GroupId=135. - Sjá að neðan um félagsmenn SFR:
Réttur læknaritara og annarra félaga SFR
Úthulutunarreglur starfsmenntasjóðsins eru háðar stöðu hans á hverjum tíma, en eru nú þannig að styrkur til námskeiðssóknar er að hámarki 80% kostnaðar náms- eða skólagjalda umsækjanda og getur hæstur orðið yfir tveggja ára tímabil kr. 80.000 fyrir námskeið. Sjóðfélagar skulu hafa verið félagar í SFR í eitt ár til að eiga rétt á óskertum styrk. Félagar sem eru í litlu starfshlutfalli skulu hafa greitt a.m.k. 3.500 kr. í félagsgjöld á síðustu 6 mánuðum til að eiga rétt á fullum styrk. Þeir sem hafa greitt minna eiga rétt á hálfum styrk í samræmi við þessar reglur. annað gildir þó um íslenskunám fyrir útlendinga. Hægt er að sækja um styrk rafrænt á vefsíðu SFR www.sfr.is og einnig liggja eyðublöð frammi á skrifstofu félagsins.
