Leikn - samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi

Leikn, samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi voru stofnuð þann 25. apríl síðastliðinn. Stofnfundurinn var haldinn í húsakynnum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á Grensásvegi 16 a og var fjölmennur. Á fundinum samþykktu 15 stofnaðilar samþykktir hins nýja félags, en opið er fyrir stofnaðild út árið 2005.

Markmið samtakanna er að vera í forystu fyrir þróun fullorðinsfræðslunnar á Íslandi og vera sameiginlegur vettvangur aðila í fullorðinsfræðslu og málsvari þeirra. Jafnframt munu samtökin verða tengiliður vegna erlendra samskipta á sviði fullorðinsfræðslu.

Byggður verður upp vettvangur fyrir skoðanaskipti um fullorðinsfræðslu og kraftar fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi sameinaðir og markvisst samstarf þeirra styrkt.

Rétt til aðildar að samtökunum eiga fræðsluaðilar eða frjáls félagasamtök sem hafa það að meginhlutverki að bjóða fræðslu fyrir fullorðna, starfa til almannaheilla á samfélagslegum grunni, eru sjálfstæðir rekstraraðilar og starfa utan hins formlega skólakerfis. Ósk um þátttöku sendist skriflega til stjórnar Leiknar.

 Samtökunum var kosin stjórn á stofnfundinum. Formaður er Smári Haraldsson, forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, aðrir stjórnarmenn eru Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Þorbjörg Jónsdóttir, Námsflokkum Reykjavíkur, Birna Gunnlaugsdóttir, Framvegis, miðstöð um símenntun og Guðjónína Sæmundsdóttir, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Varamenn eru Hulda Ólafsdóttir, Mími-símenntun og Emil Björnsson, Fræðsluneti Austurlands.

 

SAMÞYKKTIR FYRIR LEIKN

SAMTÖK FULLORÐINSFRÆÐSLUAÐILA Á ÍSLANDI

 

1. gr.

Nafn samtakanna er Leikn, - samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi.

 

2. gr.

Heimili Leiknar og varnarþing er í Reykjavík.

 

Tilgangur og markmið.

3. gr.

Tilgangur samtakanna er að efla fræðslu fullorðinna á Íslandi. Leikn er áhuga- og leikmannasamtök sem munu ekki stunda atvinnurekstur eða fjárhagslega starfsemi. Samtökin vilja stuðla að virkri umræðu um sí- og endurmenntun, auka upplýsingamiðlun og samskipti og samstarf milli fullorðinsfræðsluaðila og stjórnvalda annars vegar og efla erlend samskipti á sviði fullorðinsfræðslu hins vegar.

 

4. gr.

Markmið samtakanna eru:

  1. Að vera í forystu fyrir þróun fullorðinsfræðslunnar á Íslandi
  2. Að vera sameiginlegur vettvangur aðila í fullorðinsfræðslu á Íslandi og málsvari þeirra gagnvart stjórnvöldum.
  3. Að vera tengiliður á milli fullorðinsfræðsluaðila og stjórnvalda.
  4. Að vera tengiliður erlendra samskipta á Íslandi á sviði fullorðinsfræðslu.
  5. Að byggja upp vettvang fyrir skoðanaskipti um fullorðinsfræðslu.
  6. Að sameina krafta fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi og styrkja þannig markvisst samstarf þeirra.

 

Réttur til aðildar og úrsögn.

5. gr.

Rétt til aðildar að samtökunum eiga fræðsluaðilar eða frjáls félagasamtök sem hafa það meginhlutverk að bjóða fræðslu fyrir fullorðna, starfa til almannaheilla á samfélagslegum grunni (nonprofit), eru sjálfstæðir rekstraraðilar og starfa utan hins formlega skólakerfis.

 

6. gr.

Ósk um þátttöku sendist skriflega til stjórnar Leiknar.  Fullgildir félagar teljast þeir sem hafa verið samþykktir af stjórn og eru skuldlausir við samtökin. Aðildarfélagi getur sagt sig úr samtökunum með skriflegri  tilkynningu þar að lútandi og skal hún send formanni stjórnar fyrir komandi áramót og tekur hún þá gildi á næsta aðalfundi.

 

Stjórn, fundir og ákvarðanir.

7. gr.

Stjórn Leiknar skipi 5 aðalmenn (formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi) og 2 til vara. Stjórnin skal kosin til tveggja ára í senn en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Formaður boðar stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Laun eru ekki greidd fyrir setu á stjórnarfundum.

 

8. gr.

Stjórn samtakanna skal vinna að markmiðum þeirra og öðrum þeim verkefnum sem henni eru falin af aðal- og félagsfundi.  Stjórnin kemur fram fyrir hönd samtakanna út á við.

Halda skal fund ef stjórnarmaður óskar þess. Stjórnarfundi skal boða á tryggilegan hátt. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef allir stjórnarmenn eru mættir og ályktun er samþykkt samhljóða.

Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstakra mála sem varða hann persónulega.

 

9. gr.

Stjórn samtakanna skal halda gerðarbók þar sem skráðar skulu fundargerðir aðalfunda, félagsfunda og stjórnarfunda.  Tryggilega skal færa til bókar allar ákvarðanir sem teknar eru á aðal-, félags- og stjórnarfundum. Fundargerðirnar skal varðveita á tryggilegan hátt.

 

Fjárhagur, fjárvarsla og ábyrgð.

10. gr.

Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og fjárhag samtakanna.

Fjárhagslegar skuldbindingar samtakanna eru óviðkomandi þeim sem eiga aðild að þeim umfram það sem samþykkt hefur verið samhljóða á aðal- eða félagsfundum þar sem fulltrúar allra aðila eru mættir eða umboðsmenn þeirra.

Firmaritun samtakanna er í höndum meirihluta stjórnar.

 

11. gr.

Aðalfundur ákveður árgjöld. Stjórn skal gera fjárhags-/rekstraráætlun sem lögð skal fyrir aðalfund, sbr. 12. gr. Senda skal aðildafélögum reikninga félagsins og fjárhagsáætlun a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.

 

Aðalfundur, félagsfundir og atkvæðagreiðslur.

12. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfund skal halda árlega, eigi síðar en fyrir lok maímánaðar. Hann skal boða með tryggilegum hætti með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  • Skýrsla stjórnar
  • Endurskoðaðir reikningar félagsins
  • Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
  • Fjárhags- og rekstraráætlun og ákvörðun um árgjöld
  • Lagabreytingar
  • Kosning formanns
  • Kjör stjórnar (þegar við á)
  • Kosning skoðunarmanna reikninga
  • Önnur mál

13. gr.

Félagsfund skal halda svo oft sem þurfa þykir að ákvörðun stjórnar og alltaf ef 1/3 aðildarfélaga óskar þess. Félagsfund skal boða með tryggilegum hætti um netföng aðildarfélaganna með hæfilegum fyrirvara.

 

14. gr

Hvert aðildarfélaganna fer með eitt atkvæði á aðal- og félagsfundum og skal stjórnarformanni samtakanna send tilkynning um það hver fer með atkvæði félagsins á aðalfundi og hver til vara í forföllum aðalmanns.

Aðalfundur er ályktunarfær ef ¾ hlutar allra fullgildra aðilarfélaga skv. 6. gr. eða umboðsmenn þeirra eru mættir til fundar og ályktun er samþykkt með ¾ hluta atkvæða.

Félagsfundur er ályktunarfær ef fulltrúar ¾ hluta fullgildra aðilarfélaga skv. 6. gr.eða umboðsmenn þeirra eru mættir á fund og ef ályktun er samþykkt með ¾ hluta atkvæða.

Framkvæmdastjórar, starfsmenn og stjórnarmenn aðildarfélaga hafa rétt til setu á aðal- og félagsfundum með málfrelsi og tillögurétti.

 

Breytingar á samþykktum og slit samtakanna.

15. gr.

Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með atkvæðum ¾ þeirra sem eiga aðild að samtökunum. Sé ekki mættur nægur fjöldi fulltrúa á aðalfund þar sem tillaga um breytingar á samþykktum liggur fyrir skal boða til framhaldsaðalfundar.  Mæti enn ekki nægilegur fjöldi getur framhaldsaðalfundur samþykkt breytingu á samþykktunum með atkvæðum allra þeirra sem mættir eru á framhaldsaðalfundinn. 

Samtökum þessum verður slitið með sameiginlegri ákvörðun aðalfundar eða framhaldsaðalfundar með sömu formerkjum og hér að framan um breytingar á samþykktunum.

 

16. gr.

Ef samtökunum verður slitið skal ráðstafa eigum samtakanna til skyldra málefna, samkvæmt ákvörðunum aðalfundar. Séu eignir minni en skuldir skal skipta skuldum á félagsaðila.

 

 

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica