Um Framvegis
Framvegis, miðstöð um símenntun er sjálfstætt fræðslufyrirtæki í eigu Verzlunarskóla Íslands og BSRB. Framvegis vinnur í nánu samstarfi við Sjúkraliðafélag Íslands, Fjölbrautaskólann við Ármúla, Fræðslusetrið Starfsmennt, SRF stéttarfélag í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og fleiri aðila. Framvegis hefur fram að þessu lagt höfuðáherslu á símenntun stétta í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en þjónusta við aðrar starfsstéttir eins og starfsfólk í skrifstofu-, verslunar- og þjónustustörfum kemur til með að verða stærri þáttur í starfsemi Framvegis á næstu misserum.
Framvegis var stofnað í september 2001 og tók þá við endurmenntunarnámskeiðum fyrir þær heilbrigðisstéttir sem Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifar. Námskeiðsframboðið hefur farið vaxandi frá ári til árs og nú sinnir Framvegis fjölmörgum stéttum í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Meðal annarra verkefna Framvegis er starfsnám stuðningsfulltrúa á sambýlum á vegum ríkisins, endurmenntunarnámskeið læknaritara fyrir Starfsmennt, tungumálanám félagsmanna aðildarfélaga BSRB, námskeið fyrir fólk með lestrar- og skriftarörðugleika, auk ýmissa námskeiða fyrir atvinnulaust fólk og almenning. Auk þessa sérsníður Framvegis námskeið fyrir vinnustaði, stofnanir og aðra hópa.
Framvegis er í samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar landsins, sem eru 9 talsins og eru sum námskeið kennd í gegnum fjarfundabúnað til fræðslumiðstöðvanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Tvisvar á ári er gefið út blað þar sem auglýst eru námskeið komandi annar. Blaðið kemur út í um 9.000 eintökum og er dreift á heimili félagsmanna í stéttarfélögum margra heilbrigðis- og félagsstétta. Námskeiðin eru einnig auglýst hér á vefnum og í netpósti.
