Vinnustaðanám
Vinnustaðanám tekur við að loknu námi í skóla. Það skiptist í 6 vikna skipulagt verknám undir leiðsögn starfandi heilbrigðisritara og 6 vikna starfsþjálfun.
Vinnustaðanámið er skipulagt í tveimur samtengdum áfangapörum, þ.e. verknámi (VHR103) og starfsþjálfun (SHR103) í móttöku heilbrigðis-stofnunar og því næst VHR203 og SHR203 sem fram fer á deild.
Vinnustaðanámið fer fram á vinnustað sem viðkomandi skóli viðurkennir. Kennslustjóri brautar sækir um nemapláss í samráði við nemanda og skólinn gerir námssamning við vinnustaðinn fyrir hönd nemandans. Í samningnum er tilgreind lengd vinnutíma,
gildistími samnings og skyldur nemanda, skóla og stofnunar. Í samningi skal einnig koma fram hvernig fara skuli með ágreining sem upp kann að koma. Hverjum nemanda skal fenginn leiðbeinandi sem skal vera reyndur heilbrigðisritari á viðkomandi heilbrigðisstofnun eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu.
Ferilbók fylgir hverjum nemanda í verknámi og er á ábyrgð nemanda og leiðbeinanda og er hún hluti af námsmati á brautinni.
