Heilbrigðisskólinn

Viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsmenntabraut

Tveggja til þriggja ára starfsnám. Nemendur skulu hafa lokið námi í skóla með fullnægjandi árangri og einnig áskilinni starfsþjálfun að fullu.  Ekki er gerð krafa um að nemendur í löggiltum iðngreinum hafi lokið sveinsprófi.  Auk þess skulu nemendur hafa bætt við sig námi í almennum bóklegum greinum þannig að heildarnám í einstökum greinum verði ekki minna en hér greinir:

Íslenska                          15 einingar.

Enska                             15 einingar.

Saga                              6 einingar.

Náttúruvísindi                  9 einingar.

Stærðfræði                     6 einingar.

Íþróttir                           8 einingar.

Fyrra nám nemenda í ofantöldum greinum kemur til frádráttar. 

Einnig skulu nemendur bæta við sig námi í 3ja máli eða stærðfræði 12 einingar og samfélagsgreinum eða náttúrufræðigreinum eða íþróttagreinum 15 einingar samkvæmt eigin vali.  Fyrra nám í þeim námsgreinum sem hér um ræðir kemur ekki til frádráttar.   Miða skal við að nám í grein verði ekki minna en 9 ein. samtals.  Saga og stærðfræði eru þó undanskildar frá 9 ein. reglunni.  Starfsgreinar sem falla undir þessa málsgrein eru taldar upp í viðauka II.   Það eru til dæmis: Tanntæknabraut TT og Heilbrigðisritarabraut HMR.

 

Samantekt úr aðalnámskrá framhaldsskóla.

Kristrún Sigurðardóttir.



 

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica