Í þessum áfanga eru kynntar ýmsar lyfjaskrár og handbækur sem tengjast lyfjamálum, s.s. Ph.Eur., Ph.Nord., Martindale, Merc og DLS. Farið er í gæðahandbækur lyfjafyrirtækja og gæðastaðla s.s. GMP, GPP og GLP. Farið er í lyfjafræðilega umsjá (Pharmaceutical care). Farið er ítarlega í notkun íslensku Sérlyfjaskrárinnar. Farið er í erlendar lyfjaskrár, lyfjaverðaskrá og ATC-flokkunarkerfið. Fjallað er um helstu starfsemi apóteka og sjúkrahúsapóteka. Einnig eru lesin tímarit sem tengjast lyfjamálum.
MeiraAð nemandi:
Í áfanganum er farið yfir helstu verkjalyf, tauga- og geðlyf og lyf við hrörnunarsjúkdómum, eins og Alzheimer, Parkinson og MS. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka og hvaða áhrif þau hafa og hvernig það kemur að notum við að lækna sjúkdóm eða heilkenni. Fjallað er um önnur áhrif lyfja og samspil lyfja. Farið er yfir helstu skammtastærðir og hvernig lyf eru tekin svo þau gagnist sem best.