Starfsnám
Nám á lyfjatæknabraut skiptist í eins og hálfs árs aðfararnám (almennar greinar) og 3ja ára nám í sérgreinum brautarinnar, þar af 1 önn starfsnám. Námið er í dag 162 einingar (9 annir).
Lokaönn lyfjatækninámsins er sem sagt ólaunað starfsnám í lyfjaverslun í 14 vikur og fær nemandi 14 einingar fyrir það. Þessar 14 vikur vinnur nemandi alla almenna vinnu í lyfjaverslun og vinnur að ýmsum verkefnum í leiðinni í samvinnu við leiðbeinanda í lyfjaversluninni og kennara brautarinnar.
