Stúdentspróf
Nám á lyfjatæknabraut skiptist samkvæmt nýrri námskrá í 1ns og hálfs árs aðfararnám (almennar greinar) og 3ja ára nám í sérgreinum brautarinnar og er 162 einingar (9 annir), þar af 1 önn starfsnám.
Einingar sem nemandi þarf að bæta við sig til að ljúka starfsmennta stúdentsprófi eru: 6 ein. í íslensku, og ca. 3 ein. í ensku. Stúdentsprófið tryggir ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf.
Nemendur á lyfjatæknabraut sem vilja útskrifast með starfsmennta stúdentspróf, skulu hafa lokið námi í skóla með fullnægjandi árangri og einnig áskilinni starfsþjálfun að fullu.
